Beint í efni

Notk­un gervi­greindar hjá Garða­bæ

Garðabær hefur einsett sér að nota gervigreind með ábyrgum hætti og  sett sér stefnu um örugga notkun gervigreindar. Gervigreindarstefnu Garðabæjar má finna hér fyrir neðan.

Fyrirvari um notkun gervigreindar

Garðabær notar gervigreindartækni, meðal annars spunagreind, til að bæta þjónustu við notendur. Notast er við gervigreind, til dæmis til þess að svara og forgangsraða erindum og umbreyta töluðu máli yfir í texta.  

Garðabær hefur einsett sér að nota gervigreind með ábyrgum hætti og  sett sér stefnu um örugga notkun gervigreindar. Gervigreindarstefnu Garðabæjar má finna hér.

Spjallmenni Garðabæjar er knúið af gagnagreiningum og gervigreindartækni í þeim tilgangi að bæta og auka þjónustu við notendur. Þar sem slík tækni er í sífelldri þróun geta gæði svara verið misjöfn.  Þær upplýsingar sem notandi veitir þegar hann á í samskiptum við spjallmennið eru notaðar við þjálfun spjallmennisins til þess að bæta svörun hans innan upplýsingatækniumhverfis Garðabæjar, upplýsingum er ekki deilt til ytri aðila.

Spjallmennið er í þróun og er því gerður fyrirvari á að allar upplýsingar séu réttar.

Hérna má finna stefnu Garðabæjar um notkun gervigreindar : gbrstefna-i-gervigreind.pdf

Hérna má finna stefnu Garðabæjar um persónuvernd: reglur-um-medferd-trunadarupplysinga-05032019.pdf