Grunnstoð Garðabæjar
Grunnstoð er samstarfsvettvangur foreldrafélaga í grunnskólum bæjarins. Markmiðið er að efla rödd foreldra sem hagsmunahóps og sameina krafta þeirra til góðra verka í skólamálum.
Hverjir sitja í Grunnstoð?
Í Grunnstoð Garðabæjar sitja fulltrúar foreldrafélaga úr öllum grunnskólum bæjarins. Grunnstoð hittist að jafnaði 5 sinnum á skólaári og ræðir sameiginleg málefni skólanna. Samstarfið auðveldar foreldrafulltrúum að vera bæjaryfirvöldum til aðstoðar og ráðgjafar um skóla- og fjölskyldumál. Grunnstoð er í samstarfi við Heimili og skóla – landssamtök foreldra.
Hafa samband
Ef þú hefur spurningar eða ábendingar getur þú sent tölvupóst á grunnstod@gardabaer.is.
Starfsreglur Grunnstoðar Garðabæjar
Fulltrúi í skólanefnd grunnskóla
Grunnstoð Garðabæjar skipar fulltrúa og varafulltrúa úr sínum hópi í skólanefnd grunnskóla til tveggja ára í senn. Fulltrúi foreldra situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt, í samræmi við lög um grunnskóla.
Hlutverk fulltrúa í skólanefnd
Fulltrúi foreldra í skólanefnd Garðabæjar skal huga að eftirtöldu:
- Starfa af samviskusemi og skyldurækni að framgangi málefna allra grunnskóla í Garðabæ á faglegan og málefnalegan hátt.
- Fylgja eftir erindum til skólanefndar frá Grunnstoð, foreldrafélögum og öðrum foreldrum sem til hans leita.
- Kynna fyrir stjórn Grunnstoðar það sem er efst á baugi hverju sinni og snertir foreldrasamfélagið.
- Miðla upplýsingum til foreldrafulltrúa varðandi mál sem tekin eru fyrir á fundum skólanefndar, til dæmis með því að senda fundargerðir og stuttar samantektir til formanna foreldrafélaga og foreldrafulltrúa í skólaráði.
- Vera vakandi yfir þeim málum sem eru til umfjöllunar og snerta foreldrasamfélagið.
Hafa samband við fulltrúa foreldra
Foreldrar geta haft samband beint við fulltrúa foreldra í skólanefnd eða til formanns foreldrafélags í viðkomandi skóla. Upplýsingar um formenn foreldrafélaga og fulltrúa foreldra í skólaráði er að finna á vef viðkomandi skóla.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.