Beint í efni

Rösk­un á skóla­starfi

Röskun á skóla- og frístundastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.

Almannavarnir - veður - grænt

Fyrir foreldra

Leiðbeiningar

Þessar leiðbeiningar eiga við börn yngri en 12 ára. Athugið að hér er aðeins um viðmið að ræða sem er háð mati forsjáraðila. Leiðbeiningarnar eru á íslensku, ensku og pólsku auk þess sem hægt er að sjá þýðingar yfir á fleiri tungumál.

  • Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Veðurfar og aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og breyst skjótt með ófyrirséðum hætti.
  • Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, til dæmis ef bíllinn er ekki búinn til vetraraksturs.
  • Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema tilkynnt sé um það sérstaklega. Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla og mega forsjáraðilar þá búast við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
  • Forsjáraðilar leggja alltaf sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í eða úr skóla vegna veðurs, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti forsjáraðilar aðstæður svo að ekki sé óhætt fyrir börn þeirra að sækja skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það sem lítur á tilvikið sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða forsjáraðilar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
Röskun á skólastarfi - Garðabær