Beint í efni

Rafræn skóla­daga­töl

Dagatöl leik- og grunnskóla Garðabæjar eru aðgengileg fyrir dagatöl á Google, Apple eða Microsoft Outlook.

Skóladagatölin

Í skóladagatalinu er meðal annars hægt að sjá:

  • skipulagsdaga
  • frí og leyfi
  • dagsetningar nemenda- og foreldrasamtala

Leiðbeiningar

Google

  1. Opnaðu calendar.google.com.
  2. Í valmynd hægra megin, farðu í Other Calendars og smelltu á +.
  3. Veldu From URL, bættu við iCal-hlekknum og smelltu á Add Calendar.
  4. Skóladagatalið birtist í dagatalinu þínu (og er sýnilegt undir Other calendars).

Microsoft Outlook

  1. Opnaðu Outlook og farðu í Calendar.
  2. Veldu Open Calendar úr valmynd og From Internet (í forriti) eða Subscribe from Web (í vafra).
  3. Settu inn iCal-hlekkinn og ýttu á OK eða Import.
  4. Athugaðu að Microsoft Outlook-umhverfi fyrirtækja eða stofnana getur verið stillt með takmörkum sem geta haft áhrif á hvort og hvernig dagatölin birtast.

Apple

  1. Opnaðu Add Calendar.
  2. Veldu Add Subscription Calendar.
  3. Settu iCal hlekkinn í Subscription URL og smelltu á Subscribe.