Beint í efni

Tón­list­ar­skóli Garða­bæj­ar

Tónlistarskóli Garðabæjar

Kirkjulundur 11
210 Garðabær
Sími: 591 4500

Álftanesskóli við Breiðumýri
225 Garðabær
Sími: 591 4505

Netfang: tonlistarskoli@tongar.is

Um skólann

Nýr vefur Tónlistarskóla Garðabæjar er í þróun og verður tekin í notkun síðar á árinu.

Tónlistarskóli Garðabæjar er til húsa að Kirkjulundi 11 þar sem aðalskrifstofan er staðsett og við Breiðamýri í Álftanesskóla. Einnig er kennt í grunnskólum í Garðabæ.

Facebook síða Tónlistarskóla Garðabæjar - þar má sjá upplýsingar um tónleika og margt fleira.

Innritun

Til að fá skólavist í Tónlistarskóla Garðabæjar þarf lögheimili nemenda að vera í Garðabæ. Nemendur í framhaldsnámi og þeir sem stunda miðnám í söng eru undanskyldir þessari reglu en falla undir reglur jöfnunarsjóðs íslenskra sveitarfélaga um jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.

Opnunartími

Skrifstofan Kirkjulundi er opin:

  • Mán.–fimmtudaga:  kl. 12 - 17
  • Föstudaga: 9:30–13:30

Hlutverk og meginmarkmið

Hlutverk skólans er að stuðla að aukinni hæfni nemenda til að flytja, njóta og greina tónlist og jafnframt að gera þau að virkum hlustendum, auk þess að efla tónlistarlíf almennt.

Skólinn vinnur að þessum markmiðum með því að veita almenna tónlistarfræðslu. Nemendur fá meðal annars tækifæri til að:

  • læra að syngja og leika á hljóðfæri.
  • skapa sína eigin tónlist.
  • taka þátt í fjölbreyttu samspili.

Námið er einstaklingsmiðað og leitast er við að kennsluaðferðir og viðfangsefni séu fjölbreytt og við hæfi hvers og eins.

Tónlistarnámið

Námsbrautir:

  • Klassískar hljóðfæradeildir
  • Klassísk söngdeild
  • Rytmísk deild  (djass og rokk)

Mikil áhersla er lögð á samleik og samsöng nemenda en í skólanum eru starfandi blásarasveitir og strengjasveit, ásamt ýmsum samspilshópum. Einnig er boðið upp á nám á píanó, fiðlu og selló samkvæmt Suzuki-aðferðinni.

Gjaldskrá

Liður

2025/2026 (kr.)

2026/2027 (kr.)

Munur (kr.)

Munur (%)

Hljóðfæranám, hóptímar

57,200

59,500

2,300

4.0%

Hljóðfæranám – grunn- og miðstig, fullt nám

132,100

137,400

5,300

4.0%

Hljóðfæranám – framhaldsáfangi, fullt nám

145,100

150,900

5,800

4.0%

Söngnám – grunn- og miðáfangi, fullt nám

132,100

137,400

5,300

4.0%

Söngnám – framhaldsáfangi

145,100

150,900

5,800

4.0%

Suzuki nám

117,000

121,700

4,700

4.0%

Hljóðfæraleiga

14,200

14,800

600

4.2%

Forsendur og skýringar

• Systkinaafsláttur: 20% fyrir annað systkin og 30% fyrir þriðja systkin (miðað við næsthæstu/hæstu gjöld).

• Nám á fleira en einu hljóðfæri: 20% afsláttur af námsgjaldi á annað hljóðfæri.

• Gjalddagar: 1. október, 1. nóvember og 1. desember.