Laus störf
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Kynntu þér laus störf hjá Garðabæ hér fyrir neðan.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum.
Þegar umsókn hefur verið send fær umsækjandi tilkynningu á skjáinn ásamt tölvupósti um að umsókn hafi borist. Öllum umsóknum um auglýst starf er svarað þegar ráðningu er lokið.
Leikskólar
Leikskólinn Akrar - leikskólakennari
Leikskólinn Akrar auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf og/eða hlutastarfsmanni. Við leitum að drífandi starfsmanni í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og allskonar fólki eru miklar líkur á að þú fallir vel inn í hópinn okkar. Starfsandi á Ökrum er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur21. október 2026Bæjarból - leikskólakennari
Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu.
Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1- 5 ára.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Hreyfing – Lífsleikni
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur30. september 2026
Laun sumarstarfsfólks 2026
Hér má finna upplýsingar um laun sumarstarfsfólks 2026
Hlunnindi fyrir starfsmenn
Garðabær býður starfsfólki upp á ýmis hlunnindi. Aukin hlunnindi eru sérstaklega í boði fyrir starfsfólk leikskóla.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Aukin hlunnindi fyrir starfsfólk leikskóla
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
- 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum