Dale Carnegie fyrir ungt fólk í Garðabæ
Garðabær hefur samið við Dale Carnegie um áframhaldandi þjálfun á ungu fólki. Námskeiðið verður haldið í Garðaskóla og er fyrir ungt fólk á aldrinum 13 til 15 ára (8. til 10. bekk) búsett í Garðabæ.
Þetta er krefjandi og skemmtilegt námskeið sem færir ungu fólki verkfæri sem ýta undir félagsfærni, frumkvæði, leiðtogahæfileika og auka sjálfstraust þátttakenda til að vaxa. Að hafa jákvæða sjálfsmynd og trú á sjálfan sig hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og í dag með síauknum samanburði við jafnaldra. Á þessu námskeiði lærir ungt fólk að þekkja sig betur, setja sér markmið og þjálfa færni sem gerir þeim kleift að ná markmiðum sínum.
Fyrirkomulag: Námskeiðið er einu sinni í viku, 3,5 klst í senn í 9 skipti. Það hefst 3. október 2023
Verð: Fullt gjald fyrir námskeiðið er 119.000 kr fyrir hvern þátttakanda en vegna samstarfssamnings Garðabæjar og Dale Carnegie greiða þátttakendur í Garðabæ 51.000. Greiðsludreifing í boði.
Innifalið er einnig handbók og ítarefni.
Skráning: Hægt er að skrá þátttakanda á námskeiðið á dale.is eða á skrifstofu Dale Carnegie í 555 7080 og hægt er að skoða kynningarfund á dale.is/ungtfolk