Enginn vinnudagur eins
„Starfið er fjölbreytt, lærdómsríkt og afar gefandi,“ segir yfirflokkstjóri umhverfishópa. Auglýst er eftir starfsmönnum til starfa í umhverfishópum Garðabæjar.
Garðabær auglýsir fjölbreytt sumarstörf fyrir sumarið 2026, þar á meðal eru störf í umhverfishópum Garðabæjar. Vignir Snær Norðdahl, yfirflokkstjóri umhverfishópa, mælir hiklaust með því að sækja um starf í umhverfishópum bæjarins.
„Það eru margar góðar ástæður fyrir því að sækja um starf í umhverfishópum. Starfið er fjölbreytt, lærdómsríkt og afar gefandi. Starfið veitir ungmennum dýrmæta starfsreynslu ásamt tækifærum til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins,“ segir Vignir sem hefur starfað með umhverfishópum Garðabæjar síðastliðin þrjú sumur. Hann segir það alltaf jafn skemmtilegt.
Vignir segir mikinn kost að fá að vinna undir berum himni í fallegu umhverfi og að ávallt skapist sterk liðsheild innan hópsins. Annar stór kostur er svo sá að verkefnin eru fjölbreytt og að enginn vinnudagur er eins.
„Umhirða og viðhald gróðurbeða, þökulagnir, málningarverkefni, stígagerð á náttúrusvæðum, hreinsun og ýmis sérverkefni, t.d. í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur,“ tekur Vignir sem dæmi um verkefni sem rata inn á borð þeirra sem starfa í umhverfishópum Garðabæjar.
Umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Garðabæ er til og með 10. mars.
