19. feb. 2026

Fjölbreytt sumarstörf í boði

Garðabær auglýsir fjölbreytt sumarstörf fyrir sumarið 2026. Umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Garðabæ er til og með 10. mars.

  • Fjölbreytt sumarstörf í boði
    Umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Garðabæ er til og með 10. mars. Fjölbreytt sumarstörf eru í boði.

Garðabær auglýsir fjölbreytt sumarstörf fyrir sumarið 2026. Umsóknarfrestur um sumarstörf hjá Garðabæ er til og með 10. mars, upplýsingar um störfin má nálgast á ráðningarvef Garðabæjar.

Ýmis spennandi störf eru í boði fyrir 17 ára, t.d. í umhverfishópum og við vinnu í kringum sumarnámskeið íþrótta- og tómstundarfélaga. Vinnutími er 6 tímar á dag í 6 vikur fyrir 17 ára (fædd árið 2009).

Sömuleiðis stendur 18 ára og eldri einstaklingum til boða að sækja um fjölbreytt sumarstörf, t.d. almenn garðyrkjustörf, flokkstjórastörf, vinnu í kringum sumarnámskeið íþrótta- og tómstundarfélaga, vinnu á Hönnunarsafni Íslands að ógleymdum skapandi sumarstörfum.

Fjölbreytt sumarstörf í boði

Vinnuskólinn fyrir 14-16 ára

Vinnuskólinn verður á sínum stað í sumar og búið er að opna fyrir umsóknir. Vinnuskóli Garðabæjar býður unglingum í 8., 9. og 10. bekk upp á fræðandi og uppbyggilega sumarvinnu í öruggu starfsumhverfi. Flest verkefni snúa að garðyrkju og umhirðu í bænum en eldri unglingar eiga möguleika á aðstoðarstarfi í leikskóla eða á sumarnámskeiðum