28. feb. 2025

Langir fimmtudagar í mars á Bókasafni Garðabæjar

Bókasafn Garðabæjar mun bjóða gestum og gangandi í heimsókn á fimmtudagskvöldum í mars þar sem boðið verður upp á fjölbreytt erindi.

Boðið verður upp á fjölbreytta fræðslu á Bókasafni Garðabæjar öll fimmtudagskvöld í mars.

„Nú blæs Bókasafn Garðabæjar aftur til leiks og býður upp á fróðleg og skemmtileg erindi á löngum fimmtudögum í mars. Öll erindin hefjast klukkan 19:00. Þar kennir ýmissa grasa og getur fólk fundið eitthvað við sitt hæfi. Enginn aðgangseyrir og boðið upp léttar veitingar,“ segir Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins, um dagskrána.

6. mars kl. 19.00: Kvennasögusafnið á kvennaárinu 2025

Kvennasögusafn Íslands heldur upp á 50 ára afmæli sitt nú í ár. Á sama tíma hafa tugir félaga femínista, kvenna, launafólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks boðað til Kvennaárs. Í erindinu verður fjallað um hvað var í farvatninu árið 1975 og hvernig er verið að vinna með það nú 50 árum síðar. Frítt inn og léttar veitingar.

13. mars kl. 19.00: Matjurtaræktun – úti í garði, inná baði, í stofuglugga

Petra Stefánsdóttir garðyrkjufræðingur og blómaskreytir hjá Garðheimum og einn af meðlimum Seljagarðs fræðir gesti um matjurtaræktun á öllum vígstöðum, hvort sem það er í garðinum heima, blómabeðinu, í pottum og kerjum á svölum, við anddyrið eða í samfélagsgörðum.

Untitled-design-4-

Petra fræðir okkur um allt sem er nauðsynlegt að vita, hvort sem það er undirbúningur jarðvegs, næring, varnir, sáning, útplöntun eða umhirða til uppskeru.

20. mars kl. 19.00: Hæglæti- Svar við hraða og streitu

Áhugi fyrir hæglátara lífi, eða „Slow living“, hefur vaxið víða um heim síðustu árin. Í heimi sem lengi hefur hampað hraða, fylgir því gjarnan langþráður léttir og ávinningur að velja að njóta hæglætis betur.

Dögg Árnadóttir, lýðheilsufræðingur og stjórnarkona Hæglætishreyfingarinnar á Íslandi mun í þessu erindi fjalla nánar um þetta, ásamt því að leiða umræður áhugasamra um hugmyndir og leiðir að hæglátara lífi.

27. mars kl. 19:00: Grænland – frá fyrstu kynnum til nútímans

Sumarliði R Ísleifsson, sagnfræðingur og dósent hjá Háskóla Íslands ræðir um fyrstu kynni Íslendinga við Grænlendinga og stofnun byggðarinnar í Scoresbysundi, nú Ittoqqortoormiit. Byggðin var nátengd deilum um yfirráð á landinu. Sumarliði fjallar um tengslin á milli Íslands og Grænlands og rammar inn erindið með því að taka saman helstu atriði varðandi stöðu landsins, erlenda ásælni þangað og tengja þau við samtímann.