Lestrarstuð og skipulögð dagskrá í allt sumar á Bókasafni Garðabæjar
Harry Potter hátíð, myrkraverk og tæknifikt! Bókasafn Garðabæjar býður öll börn og foreldra þeirra velkomin á bókasafnið í sumar
Á Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi 7 verður skipulögð dagskrá með reyndu starfsfólki alla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Einnig verður okkar sívinsæli sumarlestur í gangi í allt sumar og mun einn heppinn lestarhestur fá glaðning í hverri viku.
Hvað er í boði?
Þriðjudagar:
Þriðjudagsleikar frá kl. 13-15: Stuð og stemmning í útileikjum á Garðatorgi. Boðið verður uppá útikeilu, teygjó, krítar, snú-snú og margt fleira.
Leshringurinn Lesum saman frá kl. 14-15, er ætlaður fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára þar sem þau taka með sér eldri lesfélaga. Áhersla verður á lesskilning, jákvæða umræðu og samveru fyrir þátttakendur. Þegar þátttakendur hafa lesið eina bók saman er hægt að fylla út happamiða sem fer í lukkupott.
Miðvikudagar:
Myrkraverk á bókasafninu frá kl. 9-12. Við dimmum ljósin og bjóðum uppá ljósaborð og segulkubba, skuggalega skemmtilegt.
Tæknifikt inni í Sköpunarskúffunni frá kl. 13-14, þar er að finna þrívíddarprentara og vínilskera, frumlegt og skapandi.
Fimmtudagar:
Fimmtudagsföndursmiðja frá kl. 10-12. Alltaf eitthvað nýtt og spennandi á hverjum fimmtudegi fyrir föndurþyrst börn á öllum aldri.
Harry Potter hátíð:
Afmælisdagur Harry Potter er 31. júlí. Við tökum afmælisveislur mjög alvarlega á Bókasafni Garðabæjar og afmæli Harry Potter er enginn undantekning. Við munum útbúa töfrasprota, leita að gullnu eldingunni, skemmta okkur með sokka og margt fleira. Dagskráin verður auglýst síðar.