31. maí 2022

Listahátíð í Garðabæ -rauðglóandi götuleikhús

Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar skálma um götur og torg og slá tóninn fyrir Listahátíð í Reykjavík 2022. Götuleikhúsið mætir í Garðabæ laugardaginn 4. júní kl. 16. Atriðið hefst við Litlatún og endar við Garðatorg.

  • Listahátíð: Rauðglóandi götuleikhús
    Götuleikhúsið mætir í Garðabæ laugardaginn 4. júní kl. 16. Atriðið hefst við Litlatún og endar við Garðatorg.

Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar skálma um götur og torg og slá tóninn fyrir Listahátíð í Reykjavík 2022. Risavaxnir fánar og blævængir svífa yfir mannfjöldanum og loftið er þrungið spennu, fegurð og hrynjandi.

Götuleikhúsið mætir í Garðabæ laugardaginn 4. júní kl. 16. Atriðið hefst við Litlatún og endar við Garðatorg. Allir velkomnir að fylgja verunum!

Hollenski leikhópurinn Close-Act Theatre hefur starfað í hartnær þrjátíu ár og vakið athygli víða um lönd fyrir leiftrandi götuleikhússýningar sem hrífa áhorfendur með sér inn í veruleika þar sem allt getur gerst.

Risaeðlurnar í sýningunni Saurus spígsporuðu um miðborg Reykjavíkur í tilefni af opnun Listahátíðar árið 2018 og glöddu áhorfendur á öllum aldri. Hér snýr hópurinn aftur með seiðandi viðburð á heimsmælikvarða sem enginn má missa af.

Upplýsingar á vef Listahátíðar.
Viðburður á facebook- síðu Listahátíðar.