Mikil ánægja á meðal íbúa í Garðabæ
91% íbúa eru ánægð með Garðabæ sem stað til að búa á og 86% eru ánægð með þjónustu Garðabæjar á heildina litið. Í samanburði við önnur sveitarfélög mælist Garðabær jafnan í efstu sætunum þegar kemur að ánægju íbúa gagnvart helstu þjónustuþáttum. Þetta sýna niðurstöður nýrrar þjónustukönnunar Gallup sem gerð er árlega.
-
91% íbúa eru ánægð með Garðabæ sem stað til að búa á og 86% eru ánægð með þjónustu Garðabæjar á heildina litið. Í samanburði við önnur sveitarfélög mælist Garðabær jafnan í efstu sætunum þegar kemur að ánægju íbúa gagnvart helstu þjónustuþáttum.
91% íbúa eru ánægð með Garðabæ sem stað til að búa á og 86% eru ánægð með þjónustu Garðabæjar á heildina litið. Í samanburði við önnur sveitarfélög mælist Garðabær jafnan í efstu sætunum þegar kemur að ánægju íbúa gagnvart helstu þjónustuþáttum. Þetta sýna niðurstöður nýrrar þjónustukönnunar Gallup sem gerð er árlega.
Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu 20 stærstu sveitarfélaga landsins, gera samanburð þeirra á milli og fylgjast með breytingum frá fyrri mælingum. Í könnuninni er meðal annars spurt um ánægju með lykilþætti þjónustu á borð við leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu, umhverfi, sorphirðu, menningarmál og skipulagsmál. Niðurstöðurnar nýtast Garðabæ sem mikilvægt verkfæri í umbótastarfi og forgangsröðun.

Ánægja með leikskóla mælist hæst í Garðabæ í samanburði við önnur sveitarfélög sem tóku þátt í könnuninni. 87% svarenda segjast ánægð með þjónustu leikskóla.
Könnunin var gerð á dögunum 17. nóvember 2025 til 13. janúar 2026 og voru niðurstöður hennar kynntar á bæjarráðsfundi þriðjudaginn 27. janúar 2026.
Ánægja með helstu þjónustuþætti
Niðurstöðurnar sýna að mikil ánægja er meðal íbúa þegar kemur að aðstöðu til íþróttaiðkunar en 88% svarenda lýsa yfir ánægju með hana. Jafnframt segjast 87% vera ánægð með gæði umhverfis í nágrenni við heimili.
Garðabær mælist vel yfir meðaltali í öllum liðum en munurinn er hvað mestur þegar kemur að málefnum leikskóla. Ánægja með leikskóla mælist hæst í Garðabæ í samanburði við önnur sveitarfélög sem tóku þátt í könnuninni. 87% svarenda segjast ánægð með þjónustu leikskóla, 84% eru ánægð með þjónustu grunnskóla og segjast 78% íbúa vera ánægð með þjónustu við barnafjölskyldur. Þá mælist Garðabær einnig efstur þegar spurt er um ánægju með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið.
Hér sést hvernig meðaltal Garðabæjar er í samanburði við sveitarfélög í heild er, annars vegar hvað varðar ánægju með aðstöðu til íþróttaiðkunar og hins vegar ánægju með gæði umhverfisins í nágrenni við heimili.
Breytingar á milli mælinga
Á öðrum sviðum fer ánægja vaxandi, þar á meðal með þjónustu við eldri borgara og þjónustu við fatlað fólk. Ánægja með þjónustu við eldri borgara fer úr 60% í 78% og hækkar þannig um 18 prósentustig á milli ára. Svipaða sögu er að segja af þjónustu við fatlað fólk en þar eykst ánægja um rúm 10 prósentustig.
Niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós að Garðabær hækkar í átta liðum og stendur í stað í fjórum á milli ára.
„Það er alltaf ánægjulegt að fá staðfestingu á því að íbúar séu ánægðir með þá vinnu sem við leggjum í að veita góða þjónustu,” segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar. „Það er vel við hæfi að fagna þessum frábæru niðurstöðum en þessa könnun nýtum við einnig alltaf sem mikilvægt tól til að rýna í hvar við getum bætt okkur.”
Í könnuninni er einnig greint á milli þeirra sem hafa nýtt tiltekna þjónustu eða aðstöðu á síðustu 12 mánuðum og þeirra sem ekki hafa gert það. Í flestum liðum mælist ánægja meiri meðal þeirra sem hafa nýtt þjónustuna, sem gefur viðbótarvísbendingar um upplifun notenda.

91% íbúa eru ánægð með Garðabæ sem stað til að búa á og 86% eru ánægð með þjónustu Garðabæjar á heildina litið.
Niðurstöður könnunarinnar verða nú rýndar nánar og nýttar í áframhaldandi umbótavinnu. Lögð verður áhersla á að byggja áfram á því sem vel gengur og halda áfram að þróa þjónustuna í takt við þarfir og væntingar bæjarbúa.
Niðurstöður þjónustukönnunarinnar má finna í heild hérna. Þar má einnig finna niðurstöður eldri þjónustukannana sem framkvæmdar hafa verið af Gallup.