12. júl. 2022

Nágrannavarsla er mikilvæg í sumarfríinu

Þegar margir eru að heiman í sumarfríinu er nágrannavarslan sérstaklega mikilvæg. Samvinna íbúa og nágranna um að fylgjast með húsum og öðrum eignum skiptir miklu máli.

Þegar margir eru að heiman í sumarfríinu er nágrannavarslan sérstaklega mikilvæg. Samvinna íbúa og nágranna um að fylgjast með húsum og öðrum eignum skiptir miklu máli. Mikilvægt er að láta lögreglu vita strax í síma 112 af grunsamlegri hegðun og skrá hjá sér bílnúmer og aðrar upplýsingar sem geta nýst lögreglunni.

Góð ráð áður en haldið er í fríið

Forvarnir eigin heimilis

  • Loka vel gluggum og útihurðum
  • Ekki geyma stiga eða verkfæri á lóðinni
  • Hafa útiljósin kveikt, sérstaklega þegar fer að dimma á kvöldin.
  • Hafa svala- og garðhurðir læstar og með krækjum
  • Ekki tilkynna um fjarveru á samfélagsmiðlum

Aðstoð við nágranna

  • Íbúi lítur eftir heimili nágrannans sé þess óskað
  • Munið að ákjósanlegt er að sá sem er beðinn um að gæta húss hafi það í sjónlínu frá t.d. gluggum og útidyrum. Látið þann vita sem lítur eftir húsinu ef ættingi eða vinur hefur verið beðinn um að líta inn af og til og fer þar með inn í húsið.

Nokkur dæmi um það sem góður granni getur gert í fjarveru húseiganda

  • Hefur auga með grunsamlegum bíla- og mannaferðum.
  • Fylgist með að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu.
  • Setur sorp í ruslatunnu nágrannans.
  • Leggur bíl í heimreið.
  • Dregur frá/fyrir gluggatjöld.
  • Kveikir og slekkur ljós.
  • Slær blettinn