19. sep. 2023

Ný vegrið á brýr yfir Reykjanesbraut

Vegagerðin setur upp vegrið á brúm yfir Reykjanesbraut, við Kauptún og Vífilsstaðaveg til að auka öryggi gangandi vegfarenda.

  • Vegrið sett upp á Vífilsstaðavegi á brú yfir Reykjanesbraut.

Framkvæmdir hófust á dögunum hjá Vegagerðinni við að setja upp ný vegrið á tveimur brúm á Reykjanesbraut í Garðabæ, annars vegar á brú við Kauptún og hins vegar á brú við Vífilsstaðaveg. Tilgangurinn með þessum framkvæmdum er að auka öryggi gangandi vegfarenda, en sífellt fleiri nýta sér þessar brýr til að komast leiðar sinnar. 

Um er að ræða uppsetningu á nýjum brúarvegriðum og tengivegriðum í öðrum kanti brúa við gönguleiðir, ásamt endafrágangi. Heildarlengd nýrra brúarvegriða er um 270 m og heildarlengd nýs bitavegriðs utan við brú við Kauptún er um 18 m. Áætluð verklok eru í janúar 2024.

Í frétt á vef Vegagerðarinnar má m.a. sjá kortamyndir sem sýna hvar vegriðin verða sett upp.