6. des. 2022 Umhverfismál Þjónusta

Nýtt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi í Garðabæ vorið 2023

Árið 2023 munu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taka upp nýtt og samræmt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi. Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, lífrænan úrgang (matarleifar) og blandaðan úrgang.

  • Dæmi um hvernig tvær tvískiptar tunnur gætu raðast við sérbýli á höfuðborgarsvæðinu.

Árið 2023 munu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taka upp nýtt og samræmt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi. Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, lífrænan úrgang (matarleifar) og blandaðan úrgang.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, , Kjósarhreppur, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa unnið ötullega að undirbúningi nýja kerfisins á undanfarin tvö ár Stefnt er að því að innleiðing breytinganna hefjist á vormánuðum 2023. 

Nánari útfærslur verða kynntar þegar nær dregur hér á vefsíðu Garðabæjar. 

Tvær til fjórar tunnur á heimili

Íbúar munu ekki þurfa að aðhafast neitt í tengslum við þessa breytingu annað en að tileinka sér nýja flokkunarsiði. Tunnum fyrir þessa fjóra flokka verður komið fyrir við íbúðarhús eftir þörfum. Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og í flestum tilfellum verður leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við íbúðarhús. Í hinu nýja kerfi verða því að jafnaði tvær til þrjár tunnur við sérbýli en í fjölbýlishúsum fer útfærsla eftir aðstæðum á hverjum stað. Hægt er að sjá mögulegar útfærslur á vefnum flokkum.is.

Matarleifar flokkaðar við öll heimili

Nú þegar flokka langflest heimili plast og pappír frá blönduðum heimilisúrgangi en í nýju flokkunarkerfi mun heimilum verða skylt að flokka matarleifar frá öðrum úrgangi. Til að auðvelda breytinguna fá öll heimili á höfuðborgarsvæðinu gefins sérstaka körfu undir matarleifarnar og pappírspoka sem fara í hana.

Með því að flokka matarleifar frá blönduðum heimilisúrgangi er hægt að endurvinna þær í metangas og moltu. Hið samræmda flokkunarkerfi sveitarfélaganna mun því draga stórlega úr urðun og síðar brennslu á úrgangi og styðja við innleiðingu hringrásarhagkerfisins.

Samhliða þessum breytingum verður grenndargámum gefið nýtt hlutverk við að taka á móti málmi, gleri, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum, sem samkvæmt lögum ber að flokka sérstaklega og safna í nágrenni við íbúa.

Allar nánari upplýsingar um nýja flokkunarkerfið er að finna á www.flokkum.is .