29. ágú. 2023

Opinn fundur um Arnarland

Svæðið sem tillögurnar ná til afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi, Fífuhvammsvegi og bæjarmörkum við Kópavog. 

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að vísa tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 og tillögu að deiliskipulagi til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðið sem tillögurnar ná til afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi, Fífuhvammsvegi og bæjarmörkum við Kópavog.

Kynningarfundur verður haldinn í Sveinatungu, Garðatorgi 7, fimmtudaginn 31 ágúst 2023, kl. 17:00-18:30.

Tillagan gerir ráð fyrir því að reit fyrir verslun og þjónustu, 3.37 Vþ, í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar verði breytt í miðsvæði (M). Á svæðinu er gert ráð fyrir þéttri blandaðri byggð, með áherslu á heilsutengda starfsemi og uppbyggingu íbúðabyggðar m.a. í samræmi við markmið um uppbyggingu á samgöngu og þróunarás. Hámarkshæð verður almennt 3-6 hæðir en kennileitisbygging næst Hafnarfjarðarvegi geti orðið allt að 9 hæðir. Aðkoma verður frá Fífuhvammsvegi og um göng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Gert er ráð fyrir því að Borgarlína sem fylgir Hafnarfjarðarvegi liggi um svæðið

Kynningarfundur verður haldinn í Sveinatungu, Garðatorgi 7, fimmtudaginn 31 ágúst 2023, kl. 17:00-18:30.

Á fundinum verða tillögurnar sem eru á vinnslustigi kynntar og spurningum svarað.

Í kjölfar fundarins verða tillögurnar aðgengilegar á vef Garðabæjar og í þjónustuveri.

Tillögurnar verða aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í þjónustuveri frá 1.til 25.september. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 25. september 2023, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.