18. jan. 2024

Opnað fyrir umsóknir úr Þróunarsjóði grunnskóla

Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla í Garðabæ.

Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla í Garðabæ. 

  • Til úthlutunar árið 2024 eru 28 milljónir.

Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við skóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu- og menningarsvið í samstarfi við skóla geta sótt um styrk í sjóðinn.

 

Áhersluþættir Þróunarsjóðs grunnskóla 2024 -2025

  • Samskipta, samkenndar- og leiðtogaþjálfun. Vellíðan í skóla.
  • Læsi og íslenska sem annað tungumál.
  • Menntun til farsældar barna og ungmenna í barnvænu samfélagi.
  • Framsæknir kennsluhættir og samvinna kennara/fagaðila, s.s. áhersla á tækni, nýsköpun og raungreinakennslu.

 

Nánari upplýsingar um áherslur sjóðsins má finna hér á heimasíðu þróunarsjóðs leik-og grunnskóla Garðabæjar.

Einnig er hægt að sækja um styrki til verkefna sem styðja við skólanámskrá og sérstöðu hvers skóla. Við afgreiðslu er m.a. horft til tengingar við fræðasamfélagið og samstarfs milli skóla og skólastiga.


Umsóknir skulu hafa borist fyrir 17. febrúar og verður þeim svarað fyrir 31. mars.