26. jan. 2024

Safnanótt, stemning og stuð í skammdeginu

Föstudaginn 2. febrúar verður safnanótt haldin í Garðabæ, dagskrá fyrir alla fjölskylduna

 Dagskráin í Garðabæ verður annarsvegar ætluð fjölskyldum og fer fram á bókasafninu og hinsvegar sýningaropnun, jazz og stuð á Hönnunarsafninu.

Una.mynd.f.smidju


Dagskrá fyrir fjölskyldur fer fram á Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi frá kl. 17 en þá syngur Skólakór Sjála

ndsskóla undir stjórn Ólafs Schram og í kjölfarið boðið í bingó þar sem skemmtilegir vinningar verða í boði. Klukkan 18 hefst svo smiðja með grafíska hönnuðinum Unu Maríu Magnúsdóttur en skapandi skrif eru viðfangsefnið. 

Öll fjölskyldan getur tekið þátt og haft gaman saman í notalegu umhverfi bókasafnsins á Garðatorgi 7. Málverkasýning Huldu Hreindal opnar svo á veggnum klukkan 19 en sýningin er liður í safmstarfi bókasafns og Grósku.Hulda.mynd2

Á Hönnunarsafni Íslands verður opnun og innflutningspartý frá kl. 20-22. 

Sýning Lilýjar Erlu Adamsdóttur, Veggplöntur, verður opnuð en sýningin er „heimsókn“ inní föstu sýningu safnsins, Hönnunarsafnið sem heimili sem opnuð var fyrir ári. Lilý Erla er þekkt fyrir textílverk sín en hefur að undanförnu þróað veggteikningar sem minna á veggfóður en eru þó handmálaðar beint á veggi. Á sýningaropnuninni verður leikinn jazz en Birgir Steinn Theodórsson kontrabassaleikari ásamt félögum mun ljá viðburðinum enn meira líf. 

Lily-Erla-03

Í vinnustofunni verður innflutningspartý gullsmiðsins Mörtu Staworowsku sem verður við störf á safninu í næstu þrjá mánuði. Víravirki verður helsta viðfangsefni Mörtu í vinnustofudvölinni og í partýinu heldur DJ Kjörk uppi stuðinu. Það verður því blómlegt stuð í Hönnunarsafninu á safnanótt og öll sannarlega velkomin.