13. feb. 2026

Takk til ykkar

„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hve vel Garðabær mælist í þjónustu við börn og fjölskyldur. Leikskólamál fá mjög góða umsögn en 87% íbúa eru ánægð með þjónustu leikskóla og er ánægja með leikskólamál jafnframt mest í Garðabæ samanborið við önnur sveitarfélög. Það er ákaflega gleðileg niðurstaða í ljósi þess að leikskólabörnum hefur fjölgað mun meira í Garðabæ en víðast annars staðar.“

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, skrifar:

Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2025, sem gerð er í 20 stærstu sveitarfélögum landsins, sýna skýrt að íbúar Garðabæjar eru almennt mjög ánægðir með bæinn sinn og þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir og stendur Garðabær öðrum framar í flestum þjónustuþáttum. Þegar spurt er um Garðabæ sem stað til að búa á segjast 91% íbúa ánægð. Það er sterk staðfesting á því að við séum að gera góða hluti en um leið áminning um að halda áfram að gera gott samfélag enn betra.

Góð þjónusta skilar sér

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hve vel Garðabær mælist í þjónustu við börn og fjölskyldur. Leikskólamál fá mjög góða umsögn en 87% íbúa eru ánægð með þjónustu leikskóla og er ánægja með leikskólamál jafnframt mest í Garðabæ samanborið við önnur sveitarfélög. Það er ákaflega gleðileg niðurstaða í ljósi þess að leikskólabörnum hefur fjölgað mun meira í Garðabæ en víðast annars staðar. Grunnskólar mælast einnig vel þar sem 84% íbúa segjast ánægð með þjónustuna. Það skiptir okkur miklu að halda áfram að styrkja skólakerfið, byggja upp gott frístundastarf og skapa umhverfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að blómstra.

2_1770988556151

Garðabær er íþróttabær og það sést. 88% íbúa eru ánægð með aðstöðu til íþróttaiðkunar. Í samfélagi þar sem hreyfing, útivera og þátttaka skipta máli er þetta ekki bara spurning um mannvirki heldur um lífsgæði, heilsu og samfélag. Garðabær er líka menningarbær og það er gott að upplifa að íbúar séu ánægðir með menningarstarfið í bænum.

Niðurstöðurnar hjálpa okkur að ná lengra

87% eru ánægð með gæði umhverfisins. Þetta sýnir að skipulag, umhirða og aðgengi hafa raunveruleg áhrif á upplifun fólks af bænum.

Heildarupplifun af þjónustu Garðabæjar er sterk. 86% íbúa eru ánægð með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið. Það skiptir máli, sérstaklega í bæ í stöðugri þróun. Þegar þjónustan virkar vel í heild sinni skapar það traust, stöðugleika og öryggi. Það hjálpar okkur að vaxa.

 

Á fleiri sviðum mælist ánægja einnig mikil: ánægja með þjónustu við eldra fólk mælist t.a.m. 78% sem er mikil hækkun milli ára. Að sama skapi eykst ánægja með þjónustu við fatlað fólk en þar höfum við farið í ýmsar úrbætur til að bæta stöðuna. Það er mikilvægt að nefna það sérstaklega að hjá Garðabæ rýnum við alltaf niðurstöðurnar vel. Þótt staðan sé almennt mjög góð þá gefur könnunin okkur alltaf tækifæri til að gera úrbætur og bæta þjónustuna enn frekar.

Sterkur grunnur – áfram veginn

Það er ánægjulegt að sjá að Garðabær stendur öðrum sveitarfélögum framar en ánægja með þjónustu Garðabæjar er vel yfir meðaltali í öllum þjónustuþáttum þegar horft er til 20 stærstu sveitarfélaga landsins. Þetta eru mikilvægar vísbendingar um að við séum á réttri leið og að þjónustan uppfylli væntingar ólíkra hópa.

1_1770988510702

Ég er afar þakklátur starfsfólki bæjarins sem vinnur af metnaði og heilindum. Jafnframt segi ég takk við ykkur, íbúa Garðabæjar, því með ykkar virku þátttöku höfum við náð að styrkja þjónustuna statt og stöðugt. Áfram munum við nýta þessar mælingar til að halda áfram að bæta þjónustuna, hlusta á ykkur og byggja Garðabæ áfram upp sem samfélag þar sem gott er að búa, í dag og til framtíðar.

Sjá einnig: Mikil ánægja á meðal íbúa í Garðabæ