10. feb. 2022 Stjórnsýsla

Tekjutengdur afsláttur af gjöldum

Nú geta foreldrar/forráðamenn með tekjur undir viðmiðunarmörkum sótt um tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Umsóknir um afslátt eru í þjónustugátt Garðabæjar.

  • Innritun í grunnskóla
    Innritun nemenda fyrir skólaárið 2024-2025 fer fram dagana 1. – 10. mars nk. Innrita þarf nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla.

Nýverið voru samþykktar reglur um tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Reglurnar voru settar til að koma til móts við barnafjölskyldur með lágar tekjur með það að markmiði að bæta kjör fjölskyldna.

  • Foreldrar/forráðamenn með tekjur undir viðmiðunarmörkum geta sótt um tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra.
    Afslátturinn er 40% af almennu dvalargjaldi.
  • Viðmiðunartekjur til að fá afsláttinn eru miðaðar við heildartekjur heimilis þar sem meðaltekjur eru allt að 787.200 kr á mánuði. Miðað er við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu þrjá mánuði þegar umsókn er send inn.
  • Afsláttur til einstæðra foreldra og námsmanna helst óbreyttur til ársloka 2022 en verður svo tekjutengdur.
  • Systkinaafsláttur verður áfram óbreyttur þar sem allir foreldrar geta sótt um afslátt fyrir systkini af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá 50% afslátt af grunngjaldi eldra/elsta barnsins og 75% af grunngjaldi fyrir hvert barn umfram tvö. Foreldrar sem eiga rétt á afslætti skv. tekjutengingu geta því fengið 40% afslátt af gjöldum fyrir eitt barn, 50% afslátt af barni tvö og 75% afslátt af þriðja barni og fleiri börnum.
  • Rafrænar umsóknir um afslátt af leikskólagjöldum, afslátt af gjöldum frístundaheimila og afslátt af gjöldum til dagforeldra eru í þjónustugátt Garðabæjar.
  •  Sækja þarf um afsláttinn fyrir 15. febrúar vegna gjalda fyrir mars og skal fylgja yfirlit úr staðgreiðsluskrá sem sýnir tekjur síðustu þrjá mánuði. Hægt er nálgast staðgreiðsluyfirlit á þjónustuvef skattsins, skattur.is
  • Hægt verður að sækja um afslátt síðar og ef umsókn berst fyrir 15. dag hvers mánaðar kemur afsláttur til framkvæmdar í næsta mánuði á eftir. Ekki þarf að sækja um mánaðarlega en gert er ráð fyrir að endurnýja þurfi umsókn um tekjutengdan afslátt einu sinni á ári að hausti.


Hér á undirsíðu má sjá upplýsingar um tekjutengda afsláttinn og leiðbeiningar um hvernig hægt er að sækja um afsláttinn.