30. des. 2024

Tvær áramótabrennur í Garðabæ

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöld, 31. desember. 

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöld, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi.

Knattspyrnudeild Stjörnunnar sér um brennuna við Sjávargrund en Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni klukkan 21:00.

Á Álftanesi verður gamlársbrennan nærri ströndinni norðan við Gesthús. Brennan er í umsjón UMFÁ og verður kveikt í henni klukkan 20:30. Brennan verður á sama stað og síðustu ár, norðan við Gestshús við hesthúsin, aðkoma frá Bakkavegi.