• 31.12.2024, 20:30, Garðabær

Tvær áramótabrennur

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöld.

Ein brenna verður við Sjávargrund á gamlárskvöld og önnur á Álftanesi.

Kveikt verður í brennunni við Sjávargrund kl. 21:00. Knattspyrnudeild Stjörnunnar sér um brennuna en Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um flugeldasýningu.

Sjávargrund á Google Maps - korti (ATH slóð á kort sýnir hvar gatan Sjávargrund er en brennan sjálf er staðsett vestan við nær sjónum við Strandstíginn)

Á Álftanesi verður gamlársbrennan nærri ströndinni norðan við Gesthús. Aðkoma er frá Bakkavegi. Kveikt verður í brennunni á Álftanesi kl. 20.30. Brennan er í umsjón UMFÁ.

Kort á Google Maps sem sýnir Bakkaveg.