Frístundabíll

Frístundabíllinn í Garðabæ hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf.

Til að börn geti nýtt sér frístundabílinn er nauðsynlegt að skrá þau í bílinn.  


Hvort sem barnið er í frístundaheimili eða ekki þarf að skrá það í frístundabílinn í gegnum Völu vetrarfrístund í upphafi annar. Velja þarf hvar barnið tekur bílinn, tíma dags og hvert það er að fara. Kostnaður fyrir haustönn 2024 er kr. 8.800,- og fyrir vorönn 2025 kr. 11.950, -Greiðsluseðill fyrir haustönn verður sendur út í október. 

Hér má finna leiðbeiningar um skráningarferlið í Völu. ATH þegar búið er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í Völu vetrarfrístund þarf að velja sveitarfélag í fellistiku í horni vinstra megin. Þar er Garðabær valið (börn sem eru í frístundaheimili Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum velja Hjallastefnuna úr fellistikunni).
Í janúar þarf að staðfesta að skráningartímar fyrir vorönn séu réttir.

Frístundabíllinn ekur á starfstíma skólanna alla virka daga kl. 14.15 - 17:00, frá 26. ágúst til 20. desember á haustönn og frá 6. janúar til og með 6. júní á vorönn, með hléi í páskafríinu (12.-21.apríl) á vorönn. Frístundabíllinn ekur í vetrarfríi (17.-21. febrúar) skóla í febrúar sem og á starfsdögum skóla í Garðabæ en hann ekur ekki á rauðum dögum þegar frí er í skólum (sumardagurinn fyrsti, uppstigningardagur).


Óskilamunir sem berast úr frístundabílunum er skilað í Miðgarð í lok hvers dags. Hægt er að ná í afgreiðsluna í Miðgarði í síma 550-2360.

Leiðakerfi skólaársins 2024-2025

Leið 1: Tveir bílar fara eina ferð fram og til baka frá Mýrinni til Barnaskóla Hjallastefnunnar með viðkomu í Tónlistarskóla Garðabæjar, Miðgarði og Ásgarði á hverjum 45 mínútum. Fyrsta ferð dagsins er frá Mýrinni kl. 14:15 og síðasta ferð frá Mýrinni er kl. 16:30.

Leið 2: Bíllinn hefur akstur við Urriðaholtsskóla kl. 14:05, kemur við í Barnaskóla Hjallastefnunnar á leið í Ásgarð í fyrstu ferð (v/fimleika) og stoppar í Ásgarði og TG. Bíllinn fer í Mýrina og Miðgarð eftir þörfum barnanna v/ knattspyrnu, handbolta og sundæfinga.

Leið 3: Bíll fer frá Álftanesi með börn í frístundir fjórum sinnum á dag, fyrsti bíll er kl. 14:10. Bíllinn stoppar í Sjálandsskóla og heldur svo áfram  í Ásgarð og Miðgarð með stoppum í TG og Mýrinni eftir þörfum.

Skráning í frístundabílinn er í gegnum Völu frístund og skráning hefst síðar í ágúst. 

Aðrar fyrirspurnir má senda á karijo@gardabaer.is

Gjaldskrá

Ný gjaldskrá fyrir veturinn 2023-2024.

Tímabil:
Haustönn 2023kr. 8.800
Vorönn 2024kr. 11.950

Tímatafla haustönn 2023

Tímataflan sýnir mínútur yfir heila tímann. Fyrstu ferðir dagsins eru kl. 14.15 frá Mýrinni (leið 1), frá Urriðaholtsskóla kl. 14:05 (leið 2), kl. 14:10 frá Álftanesi (leið 3).

Stöð: Ferðir
Leið 1 
Einn hringur á 45 mín - 2 bílar í akstri
Mýrin

14:15/14:40/15:00/15:25/15:45/16:30

Tónlistarskólinn/KlifiðEftir þörfum
Ásgarður (auka stór bíll v/knattsp.hópa)14:25/14:50/15:10/15:35/15:55/16:40
Barnaskóli Hjallastefnunnar14:30/14:55/15:15/15:45/16:00/16:45
 Miðgarður 14:35/15:00/15:20/15:50/16:05/16:50
Tónlistarskólinn/Klifið
Eftir þörfum
Ásgarður14:45/15:10/15:30/16:00/16:15/17:00
Leið 2 - Urriðaholt
 
Urriðaholtsskóli
14:05/ 14:40/15:15/15:50
Barnaskóli Hjallastefnunnar /vegna fimleika ef þarf
 14:10
Miðgarður (eftir þörfum)
 14:12/14:45/15:20/15:55
Tónlistarskólinn (eftir þörfum)
 
Ásgarður

 14:25/14:55/15:30/16:05

Mýrin (handbolti og sund)

.../ 15:05/15:35/16:10

Miðgarður/

GKG útiæfingar (á leið frá Ásgarði)

 14:30/...../15:40/16:15
 Leið 3 (Álftanes)
 
Álftanes v. frístundaheimili
14:10/14:45/15:25

Sjáland

14:20/14:55/15:35

Ásgarður (TG eftir þörfum)
14:25/15:00/15:40
Mýrin (eftir þörfum)
 ..../15:05/15:45
Miðgarður
14:30/15:10/15:50

Látið bílstjórann sjá ykkur á biðstöðvunum.
Afdrep undan veðri er í anddyrum íþróttahúsa og frístundaheimila.