Fjárhagsáætlun 2023- ábendingar íbúa

Íbúum Garðabæjar gafst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2023-2026. Allar ábendingar verða teknar til skoðunar á milli umræðna í bæjarstjórn. 
ATH frestur til að senda inn ábendingar var til og með 3. nóvember sl.

SAMRÁÐSGÁTT FYRIR ÍBÚA UM FJÁRHAGSÁÆTLUN GARÐABÆJAR

  • Við innskráningu má sjá ferninga fyrir sjö mismunandi yfirflokka, og má setja þar undir ábendingar og tillögur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar. Áttundi flokkurinn er merktur „Annað“ og þar má leggja fram tillögur sem ekki eiga heima undir yfirflokkunum sjö.
  • Einnig má ræða og færa rök fyrir og gegn ábendingum sem búið er að setja inn.


Ábendingar geta t.d. snúið að:

  • Tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar
  • Nýjum verkefnum sem bærinn ætti að sinna
  • Verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins


Þátttaka í samráðsgáttinni er valkvæð og vinnsla þeirra upplýsinga sem safnast byggir á samþykki þátttakenda sem gefið er við innskráningu.

Einnig er hægt að senda inn ábendingar um fjárhagsáætlun í gegnum skráningarform á vef Garðabæjar: Innsendingarform á vef Garðabæjar vegna ábendinga má finna hér. 

Um fjárhagsáætlun Garðabæjar - vinnuferli

Fjárhagsáætlun Garðabæjar verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 3. nóvember 2022. 

Fjárhagsáætlun Garðabæjar verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 3. nóvember 2022.

Forsendur fjárhagsáætlunar 2023-2026
Vinnuferli fjárhagsáætlunar 2023-2026