Aðalskipulag
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030
Aðalskipulag er skipulagsáætlun sveitarfélagsins þar sem fram kemur stefna sveitarstjórnar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar á minnst 12 ára tímabili.
Aðalskipulagið er það fyrsta sem í gildi er fyrir sveitarfélagið eftir að Garðabær og Álftanes sameinuðust um áramótin 2012 og 2013.
Um leið falla eldri aðalskipulagsáætlanir úr gildi en þær voru Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 og Aðalskipulag Álftaness 2005-2024.
Vinna við gerð aðalskipulagsins hófst fyrri hluta árs 2013. Þá var hafist handa við að velja aðalskipulagsráðgjafa og niðurstaða þess ferlis var sú að ráðgjafateymi Teiknistofu arkitekta, landslagsarkitektastofunnar Landmótunar og verkfræðistofunnar Eflu var valið til verksins. Árni Ólafsson arkitekt hjá Teiknistofu Arkitekta fór fyrir ráðgjafateyminu. Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar leiddi vinnuna fyrir hönd bæjarins.
Útgefin gögn
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016 - 2030 - Útgefin bók 2019
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016 - 2030 - Útgefin uppdráttur 2019
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016 - 2030 - Umhverfisskýrsla 2019
Staðfestar aðalskipulagsbreytingar
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 Breyting VIII. Rammahluti Vífilsstaðalands
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 Breyting VII. Uppland Garðabæjar
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting VI (óveruleg). Kauptún 4.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting V. Urriðaholt norðurhluti 4.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting IV. Brekkuás, 2.06. Íb.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting III. Urriðaholt, 5.04 VÞ.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting II. Rammahlut Vífilsstaðalands. Uppdráttur.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting II. Rammahluti Vífilsstaðalands. Greinargerð.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting II. Rammahluti Vífilsstaðalands. Umhverfisskýrsla.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting I. Grundahverfi. Samfélagsþjónusta.
Undirrituð skjöl
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, greinargerð .
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, norðuruppdráttur .
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, suðuruppdráttur.
- Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, umhverfisskýrsla .