Dagforeldrar
Dagforeldrar annast gæslu barna í heimahúsum. Hjá hverju dagforeldri má mest vera með 5 börn á sama tíma. Dvalartími getur verið allt að 9 tímar á dag á virkum dögum.

Niðurgreiðsla á daggæslu
Garðabær niðurgreiðir hluta af kostnaði fyrir daggæslu hjá dagforeldri frá 10 mánaða aldri. Þannig er kostnaður við daggæslu sá sami og fyrir leikskóla. Ef foreldrar eiga ekki rétt á fullu fæðingarorlofi geta þeir sótt um greiðslu þegar barn nær 6 mánaða aldri.
Til að sækja um niðurgreiðslu þarf að skrifa undir þjónustusamning við dagforeldrið. Það sér svo um að senda samninginn til dagvistarfulltrúa Garðabæjar sem afgreiða umsóknina.

Systkina- og tekjutengdur afsláttur
Barnafjölskyldur og tekjulágir foreldrar geta átt rétt á afslætti af daggæslu.
Dagforeldri í öðru sveitarfélagi
Þú getur verið með dagforeldri fyrir barnið þitt í öðru sveitarfélagi og fengið niðurgreiðslu frá Garðabæ.
Dagforeldrið þarf:
- að vera með gilt leyfi frá sveitarfélaginu sem það starfar í
- skrifa undir þjónustusamning við Garðabæ
- skrifa undir vistunarsamning við foreldri og Garðabæ
Viltu starfa sem dagforeldri?
Með því að gerast dagforeldri er hægt að skapa sér atvinnu og fá um leið tækifæri til að verja meiri tíma með eigin börnum.
Listi yfir dagforeldra
Rakel Sigurðardóttir | Hólmatúni 2 | 847-6534 | Laust | 24 ár | 8.00 - 16.00 | |
Ana Martha Helena Alvos | Breiðás 5 | 845-4001 | Fullt - er með biðlista | 7 ár | 8:00-16:15 | |
Kamara Emmanuella Oduh | Langalína 2c (íbúð 307) | 773-4776 | Fullt - er með biðlista | Hóf störf maí 2023 |
| |
Karen Birgisdóttir | Línakur 3a | 777-5122 | Fullt |
|
| |
Berglind Birgisdóttir | Línakur 3a | 691-0958 | Fullt |
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.