Beint í efni

Af­slátt­ur af gjöld­um fyr­ir barna­fjöl­skyld­ur

Barnafjölskyldur og tekjulágir foreldrar geta átt rétt á afslætti af daggæslu.

Systkinaafsláttur

Foreldrar með 2 eða fleiri börn hjá dagforeldri, í leikskóla eða á frístundaheimili fá systkinaafslátt á gjöldum. Það þarf ekki að sækja um afsláttinn heldur reiknast hann sjálfkrafa.

  • 50% afsláttur fyrir annað barn.
  • 75% afsláttur fyrir barn umfram tvö.
  • Afslátturinn gildir fyrir eldra barnið eða elstu börnin.
  • Afsláttur er veittur af grunngjaldi en fullt verð er greitt fyrir fæði.

Tekjutengdur afsláttur

Til að koma til móts við barnafjölskyldur með lágar tekjur býður Garðabær upp á tekjutengdan afslátt af gjöldum hjá dagforeldrum, leikskólum og frístundaheimilum. Afslátturinn er 40% af dvalargjaldi

Systkinaafsláttur helst óbreyttur þar sem allir foreldrar fá afslátt af leikskólagjöldum fyrir systkini.

Viðmiðunartekjur

  • Einstaklingar: Lægri meðaltekjur en 856.000 krónur á mánuði.
  • Sambúðarfólk: Lægri heildarmeðaltekjur en 1.049.000 krónur á mánuði.  

Miðað er við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu 3 mánuði þegar umsókn er send inn.

Umsókn um tekjutengdan afslátt

Forsjáraðilar með tekjur undir viðmiðunarmörkum sækja um tekjutengdan afslátt á Þjónustugátt Garðabæjar.

  • Sækja þarf um afsláttinn fyrir 15. mánaðar hjá til að afsláttur reiknist í næsta mánuði á eftir.
  • Fylgja þarf með yfirlit úr staðgreiðsluskrá sem sýnir tekjur síðustu 3 mánuði. Staðgreiðsluyfirlit eru aðgengileg á skattur.is.
  • Endurnýja þarf umsóknina einu sinni á ári. Afsláttur er veittur til og með 30. júní og því þarf að sækja aftur um fyrir 15. júlí á hverju ári.

Tengt efni