Leikskólar í Garðabæ
Leikskólaganga barna er spennandi tími þar sem hlúð er að börnum með skapandi starf og leik. Í Garðabæ eru 17 leikskólar og foreldrar hafa ákveðið val um þann skóla sem hentar þeirra barni best.

Flýtileiðir

Sækja um leikskóla
Upplýsingar um hvernig á að sækja um leikskólapláss og hvernig á að sækja um flutning á milli leikskóla.

Leikskólagjöld
Leikskólagjöld eru niðurgreidd af Garðabæ en foreldrar greiða hluta kostnaðar ásamt fæði.

Biðlistagreiðslur
Til að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur (barn er orðið 12 mánaða) og þangað til barn fær vistun í leikskóla geta foreldrar fengið biðlistagreiðslur.

Uppsagnarfrestur
Hvernig á að segja upp leikskóladvöl.
Vala leikskólakerfi
Leikskólakerfið Vala er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu í Garðabæ.
Opnunar- og dvalartími
Hvenær eru leikskólar opnir og hvernig er hægt að breyta dvalartíma barns.

Tákn með tali - orðabók
Tákn með tali (TMT) er tjáskiptaaðferð sem nýtist börnum af erlendum uppruna eða sem glíma við tal- eða málerfiðleika.
Tengdar fréttir
Fréttir02.07.2026Leikskólabörnum í Garðabæ færð sólmyrkvagleraugu
Öll leik- og grunnskólabörn í Garðabæ hafa nú fengið sólmyrkvagleraugu að gjöf frá bænum í tilefni af almyrkva á sólu sem verður 12. ágúst næstkomandi.
Fréttir12.05.2026326 börn sungu lög Dr. Gunna á Garðatorgi
Garðatorg iðaði af lífi þegar hópur fimm ára barna af leikskólum og leikskóladeildum í Garðabæ söng á frábærum tónleikum þar sem lög Dr. Gunna voru í aðalhlutverki.
Fréttir06.03.2026Innritun í leikskóla Garðabæjar fer fram 25. og 26. mars
Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir haustið fer fram 25. og 26. mars. Við minnum foreldra á að yfirfara umsóknir og uppfæra eftir þörfum fyrir 23. mars, líkt og áður verður biðlisti frystur í allt að 30 daga til að hægt sé að vinna úr umsóknum.
Fréttir24.02.2026Auglýst er eftir umsóknum í þróunarsjóð leikskóla í Garðabæ
Fræðslu- og menningarsvið auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar.