Leikskólagjöld
Leikskólagjöld eru niðurgreidd af Garðabæ en foreldrar greiða hluta kostnaðar ásamt fæði.

Leikskólagjöld
Leikskólagjöld eru niðurgreidd af Garðabæ en foreldrar greiða hluta kostnaðar ásamt fæði. Leikskólagjöld eru samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni.
Hægt er að sækja um niðurfellingu á leikskólagjöldum ef barn er í fríi á eftirfarandi tímabilum:
- Valfrjálsar frívikur (1–2 vikur) – að lágmarki 5 samfelldir dagar.
- Vetrarfrí – 4 samfelldir dagar í febrúar.
- Jólafrí – virkir dagar á milli jóla og nýárs.
Reglur um greiðslur vegna dvalar á sjálfstætt starfandi leikskólum
Dvalartími (klst./viku) | Dvalargjald á mánuði (kr.) | Dvalartími (klst./viku) | Dvalargjald á mánuði (kr.) |
|---|---|---|---|
20 | 16,318 | 30 | 24,477 |
21 | 17,133 | 31 | 25,293 |
22 | 17,949 | 32 | 26,108 |
23 | 18,765 | 33 | 26,925 |
24 | 19,581 | 34 | 27,740 |
25 | 20,397 | 35 | 28,556 |
26 | 21,212 | 36 | 29,372 |
27 | 22,028 | 37 | 33,777 |
28 | 22,844 | 38 | 38,844 |
29 | 23,660 | 39 | 41,175 |
40 | 43,645 |
Liður | Gjald (kr./mán.) |
|---|---|
Fæðisgjald | 11,890 |
Foreldragjald (frjálst framlag) | 650 |
Forsendur og skýringar
• Gildir frá 1. janúar 2026. Vistun 20–40 klst./viku.
• Tekjutengdur afsláttur: 40% af almennu dvalargjaldi (ekki af fæðisgjaldi). Viðmiðunartekjur: 923.000 kr./mán. (einstaklingur) og 1.131.000 kr./mán. (sambúðarfólk).
• Systkinaafsláttur: 50% af gjaldi fyrir barn umfram eitt og 75% fyrir hvert barn umfram tvö (fæði á fullu verði).
• Reglur um greiðslur vegna dvalar barna á leikskólum sem ekki eru reknir af Garðabæ (greitt í 11 mánuði; brúttótölur að frádregnum innheimtum gjöldum).
Afslættir
Fyrir systkini, tekjulágar fjölskyldur og starfsfólk leikskóla
Systkina- og tekjutengdur afsláttur
Barnafjölskyldur og tekjulágir foreldrar geta átt rétt á afslætti af leikskólagjöldum.
Lesa meira um systkina- og tekjutengdan afslátt.
Afsláttur fyrir starfsfólk leikskóla
Starfsfólk leikskóla fær 40% afslátt af leikskólagjöldum. Afslátturinn er hvatning fyrir fólk til að starfa í heimabyggð og eykur stöðugleikann við mönnun leikskóla. Skilyrði fyrir afslætti er að starfsmaður sé hæfur, sé ráðinn til að minnsta kosti til árs og ráðningarhlutfall er 70-100%.
Greiðslur
Greiðslur
Greitt er fyrirfram mánaðarlega. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 10 dögum síðar. Leikskólagjöld eru innheimt í 11 mánuði á ári en júlí er gjaldfrjáls mánuður (skilgreindur sem sumarleyfi).
Hægt er að greiða gjöldin með kröfu í heimabanka eða boðgreiðslum á kreditkorti.
Innheimtuferill vegna vanskila
- Ef dvalargjöld er enn ógreidd 10 dögum eftir eindaga færðu senda innheimtuviðvörun.
- Hafi greiðsla ekki borist 70 dögum frá gjalddaga er leikskólastjóri upplýstur um stöðu vanskila. Leikskólastjóri hefur samband og hvetur þig til að standa skil á greiðslum.
- Hafi greiðsla ekki borist 90 dögum frá gjalddaga færðu senda uppsögn á dvalarsamningi. Þar kemur fram að veittur er frestur í 30 daga til að ganga frá greiðslu áður en uppsögn tekur gildi.
Skuld
Ef foreldrar skulda 3 mánuði er leikskóladvöl barnsins sagt upp. Þegar uppsagnarbréf er afhent hafa foreldrar tækifæri til semja um vangoldin gjöld.
Uppsögn á leikskólaplássi
Uppsagnarfrestur
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er 1 mánuður og miðast við 1. eða 15. dag hvers mánaðar. Foreldrar segja upp leikskóladvöl á Þjónustugátt Garðabæjar.
Invalid calculator data
{
"errors": [
"Invalid input: expected object, received undefined"
]
}Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.