Leikskólabörnum í Garðabæ færð sólmyrkvagleraugu
Öll leik- og grunnskólabörn í Garðabæ hafa nú fengið sólmyrkvagleraugu að gjöf frá bænum í tilefni af almyrkva á sólu sem verður 12. ágúst næstkomandi.
Fyrir skemmstu fór Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, ásamt fulltrúum fræðslu- og frístundasviðs í alla grunnskóla Garðabæjar og afhenti skólastjórum gjöfina. Grunnskólanemendum voru svo færð sólmyrkvagleraugun við skólaslit. Nú hafa leikskólabörn einnig fengið gleraugu og eru því vel búin fyrir almyrkvann.
Þess má geta að á bakhlið gleraugnanna er QR-kóði sem vísar á solmyrkvi2026.is. Þar má finna aðgengilegt fræðsluefni um sólmyrkva og hvernig best sé að fylgjast með þessu merkilega náttúrufyrirbæri. Þar má einnig finna fræðslu um hvernig eigi að nota sólmyrkvagleraugu. Foreldrum og börnum er bent á að kynna sér efnið í sumar, svo upplifunin verði sem best 12. ágúst.

Sjá einnig: Öll grunnskólabörn í Garðabæ fengið sólmyrkvagleraugu




