Tákn með tali - orðabók
Tákn með tali (TMT) er tjáskiptaaðferð sem nýtist fólki á öllum aldri, sérstaklega börnum og fullorðnum sem glíma við tal- eða málerfiðleika. Aðferðin getur einnig verið gagnleg í fjölmenningarlegu umhverfi, til dæmis í leik- og grunnskólum.

Orðabókin Tákn með tali
Orðabókin varð til í vinnu talmeinafræðinganna Grétu Pálsdóttur og Stellu Hermannsdóttur í Garðabæ á árunum 2010–2013. Hugmyndin var að börn af erlendum uppruna fengju hana afhenta þegar þau byrjuðu í leikskóla. Sérkennslustjórar leikskólanna í Garðabæ aðstoðuðu við val á orðum sem talin voru mikilvægust fyrir leikskólabarn að hafa á valdi sínu í byrjun. Um 110 orð eru í fyrsta pakkanum og hvert barn safnar í orðabók á sínum hraða.
Hver síða er með orði á íslensku, mynd og tákni (TMT) og plássi fyrir orðið á móðurmáli barnsins. Ætlunin er að foreldrar séu með í að velja orð fyrir barnið og skrifi orðið á sínu móðurmáli á lausan miða sem settur er í plastvasa síðunnar. Sumir foreldrar nýta sér einnig bókina til íslenskunáms.
Einn starfsmaður leikskólans er valinn tengiliður fyrir barnið og hefur umsjón með orðabókinni. Hann vinnur með foreldrum að því að hún sé uppfærð reglulega, sé alltaf aðgengileg fyrir barnið og notuð daglega með því í leikskólanum. Oft fara börn með bókina heim um helgar, sum jafnvel daglega. Bestur árangur verður þar sem bókinni er gert hátt undir höfði sem hjálpargagni barnsins og hún höfð í daglegri notkun.
Orðabækurnar og orðalistar
Leiðbeiningar með orðabókum
- Mælt er með að prenta út pakkann í heild sinni af netinu í „landscape“, öðrum megin á síðu, skera í sundur í tvær A5 síður og setja í plastvasa, eina síðu í hvern vasa. Þetta er gert til að hægt sé að endurnýta bækurnar þegar börn hafa ekki lengur þörf fyrir þær.
- Leikskólinn geymir pakkana og setur inn síður í möppurnar í samvinnu við foreldra. Oft er byrjað með 10–15 orð og síðan bætt í möppuna jafnt og þétt.
- Í hvern plastvasa er settur (ekki límdur) miði með orðinu á tungumáli barnsins, skrifuðu rétt á viðkomandi máli og einnig eftir framburði, ef fólk vill.
- Tengiliður fjölskyldunnar og foreldrar hittast reglubundið og bæta inn orðum í möppuna. Foreldrar sjá um að leggja til orðin á sínu máli og tengiliðurinn skráir hvernig orðið hljómar í eyrum Íslendings.
- Tengiliðurinn merkir við á meðfylgjandi lista hvaða orð barnið fær í möppuna hverju sinni.
- Gert er ráð fyrir að foreldrar setji myndir af sér, systkinum, ömmu, afa og heimili á viðeigandi blöð í möppunni. Þeim blöðum er að sjálfsögðu ekki skilað til leikskólans þegar möppunni er skilað!
- Mappan fer á milli heimilis og skóla og barnið hefur alltaf aðgang að henni, getur skoðað hana, sýnt félögum sínum í leikskólanum og fjölskyldumeðlimum og vinum heima.
- Gert er ráð fyrir að orðabækurnar séu margnota og að þeim sé skilað til leikskólans þegar barnið er komið vel áleiðis í málþróun. Reynslan verður að skera úr um hversu lengi hvert barn þarf að nota sína möppu. Tengiliður fjölskyldunnar í leikskólanum sér um að mappan skili sér til baka.
- Ef erfitt er að sjá táknin á blöðunum má reyna að fara á vefinn tmt.is. Leikskólar geta keypt verkefnabókina Upp með hendur á vef Menntamálastofnunar og svo má nýta sér vefsíðuna SignWiki Ísland.
Leiðbeiningar á PDF
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.