Beint í efni

Sækja um leik­skóla

Leikskóladvöl er úthlutað eftir aldri barna. Nánast öll börn sem eru orðin 12 mánaða þegar skólaárið hefst, 1. september ár hvert, eiga kost á leikskóladvöl.

Sækja um leikskóla

Þú getur sótt um leikskólapláss um leið og barnið þitt hefur fengið kennitölu. Sótt er um í gegnum Völu leikskólakerfi, hvort sem þú velur leikskóla rekinn af bænum eða sjálfstætt starfandi skóla.

Skilyrði: Barnið þarf að búa og vera með lögheimili í Garðabæ og þú mátt ekki skulda leikskólagjöld vegna eldra systkinis.

Þú getur valið fleiri en einn leikskóla í umsókninni. Endilega skoðaðu þá leikskóla sem eru í boði og kynntu þér starfið þeirra. Ef það er ekki laust í leikskólann sem er í aðalvali ræður leikskóli í aukavali, ef þar er ekki laust færðu pláss í leikskóla þar sem laust er.

Leiðbeiningar fyrir breytingu á umsókn.

Hvenær er úthlutað?

Plássum er úthlutað eftir kennitölu (aldri), svo þau elstu fá fyrst. Við reynum alltaf okkar besta til að systkini fái pláss á sama stað.
Flestum plássum er úthlutað í mars og apríl, en einnig er innritað jafnt og þétt yfir árið.

Nánast öll börn sem eru orðin 12 mánaða þegar skólaárið hefst (1. september) fá leikskólapláss. Foreldrar þeirra sem fá ekki pláss geta sótt um biðlistagreiðslur meðan beðið er eftir plássi.

Staðfesting á plássi

Þú færð tölvupóst þegar barnið fær leikskólapláss og hefur þá 5 virka daga til að staðfesta. Eftir það er barnið tekið af biðlista.

Þú getur sótt um flutning milli leikskóla eftir að þú hefur samþykkt leikskólaplássið.

Forgangur að leikskóla

Börn sem búa við sérstakar aðstæður geta fengið forgang inn í leikskóla. Sótt er um forgang í Þjónustugátt Garðabæjar. Í sumum tilvikum þarf að skila inn vottorði frá viðurkenndum greiningaraðilum.

Forgangur tekur tillit til:

  • barna með fötlun, alvarleg þroskafrávik eða langtímaveikindi
  • barna sem stríða við erfiðleika í félagsumhverfi
  • fötlun foreldra eða systkina eða alvarleg veikindi
  • aðild barns að barnaverndarmáli
  • ungs aldurs foreldra (18 ára og yngri)
  • foreldri er með lögheimili í Garðabæ og starfar í leikskóla í Garðabæ í 75% starfshlutfalli eða meira.

Sækja um forgang

Viltu vita meira?

Viltu vita meira? Öllum spurningum er svarað á netfanginu innritun@gardabaer.is.

Tengt efni

    Flutningur milli leikskóla

    Flutningur á milli sveitarfélaga 

    Það er ætlast til að börn séu í leikskóla í því sveitarfélagi þar sem þau eiga lögheimili. 

    Börn sem flytjast á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu geta dvalið áfram í gamla leikskólanum í allt að 6 mánuði ef þau eru á biðlista eftir leikskóla í nýja sveitarfélaginu.

    Sækja um framlengingu á leikskóladvöl

    Flutningur innan Garðabæjar


    Umsókn um flutning milli leikskóla Garðabæjar er í Völu.