Opnunar- og dvalartími í leikskólum
Opnunartími leikskóla
- Opnunartími er mánudaga til fimmtudaga frá 7:30–16.30 og föstudaga 7:30–16:00.
- Opið er allt sumarið en börn verða að taka 4 vikur í sumarfrí.
- Lokað er í páskafríi (3 dagar) og 1. virka dag í janúar. Leikskólagjöld falla niður þessa daga.
- Lokað er 5 sinnum á ári vegna skipulagsdaga sem eru á sama tíma og í grunnskólum. Tímasetningar má sjá á leikskóladagatali Garðabæjar.
Dvalartími barna
Alla jafna er óskað eftir að dvalartími haldist óbreyttur í að minnsta kosti 2–3 mánuði en hægt er að breyta lengd dvalar í leikskólakerfinu Völu.
- Dvalartími barns er sveigjanlegur frá 20–40 tímum á viku.
- Dvalartími getur verið breytilegur milli daga og innan mánaðar.
- Skrá þarf breytingu á dvalartíma fyrir 20. hvers mánaðar.
- Fyrir 20. hvers mánaðar þarf að skrá barn sérstaklega ef nýta á dvalartímann milli 14–16 á föstudögum í næsta mánuði.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.