Beint í efni

Frí­stunda­heim­ili

Nemendur í 1.–4. bekk geta tekið þátt í tómstundastarfi á frístundaheimilum við sinn skóla eftir að skóladegi lýkur. Innifalið í gjaldi frístundar er síðdegishressing. Boðið er upp á ávexti, grænmeti, brauð og holla drykki.

Opnunartími

Venjulegur opnunartími er frá lokum skóladags til 16:30. Á þeim dögum þegar kennsla fellur niður er opið frá 8:30. Foreldrar þurfa að skrá barnið sérstaklega þá daga. 

Opið er allan daginn:

  • á skipulagsdögum
  • á viðtalsdögum
  • í vetrarfríi
  • í jóla- og páskafríi (alla virka daga nema á aðfangadag og gamlársdag)

Frístundaheimilin eru lokuð einn dag á skólaári, á Menntadegi Garðabæjar. Þú getur séð alla helstu daga í skóladagatalinu.

Frístundaheimili

  • Frístundaheimilið Álftamýri

    Álftanesskóli
    Sími: 540 4780 og 821 5455
    fristund@alftanesskoli.is

  • Frístundaheimilið Krakkakot

    Flataskóli
    Sími: 820 8557
    flataskoli-fristund@flataskoli.is

  • Frístundaheimilið Regnboginn

    Hofsstaðaskóli
    Sími: 565 7033 og 617 1598
    hofsstadaskoli-fristund@hofsstadaskoli.is

  • Frístundaheimilið Sælukot

    Sjálandsskóli
    Sími: 617 1508 
    saelukot@sjalandsskoli.is

  • Frístundaheimilið Urriðakot

    Vinastræti 1-3
    591 9500
    fristund@urridaholtsskoli.is

Skrá barn á frístundaheimili

Við leggjum okkur fram við að öll börn sem vilja fái pláss á frístundaheimilum.

Skráning á frístundaheimili er í gegnum Völu vetrarfrístund. Skráningin gildir í heilt skólaár (ágúst til júní). Best er að skrá barn á vorin fyrir næsta skólaár.

Skráning í lengri viðveru

Ef færri en 12 börn eru skráð í frístundaheimilið á dögum með lengri viðveru er starfsemin sameinuð öðru frístundaheimili. Starfsfólk frá frístundaheimili nemenda fylgir þeim alltaf á milli staða.

Skráningarleiðbeiningar

  1. Skráning er á frístundavef Völu. Mælt er með því að nota vefinn á tölvu.
  2. Gættu þess að velja Garðabæ efst í vinstra horninu.
  3. Veldu lengd viðveru og þá daga sem þú vilt skrá barnið.
  4. Sendið inn skráningu.

Þú færð staðfestingu í tölvupósti þegar skráningin hefur heppnast. Það er á ábyrgð foreldra að passa upp á að skráning sé staðfest.

Breyting á dvalartíma

Breytingar á dvalartíma eru skráðar í Völu. Breyta þarf dvalartíma fyrir 20. hvers mánaðar til að þær taki gildi næsta mánuð á eftir.

Systkina- og tekjutengdur afsláttur

Barnafjölskyldur og tekjulágir foreldrar geta átt rétt á afslætti af daggæslu.

Reiknvél frístundagjalda

Frístundagjöld eru innheimt samkvæmt gjaldskrá. Þú getur áætlað kostnað með reiknivélinni hér fyrir neðan.

Heildarkostnaður: 24.600 kr.

Það er kostnaður á mánuði með 1 barn í 2 klukkutíma á dag og 5 dagar í viku.

Sundurliðun

Miðað við þínar forsendur má reikna með að eftirfarandi gjöld séu:
Dvalargjald: 19.600 kr.
Fæðisgjald: 5.000 kr.
Samtals: 24.600 kr.

Fyrirvari: Eingöngu er um áætlun að ræða miðaða við þær forsendur sem slegnar eru inn.

Gjaldskrá frístundaheimila