Beint í efni

Dag­for­eldrar

Dagforeldrar annast gæslu barna í heimahúsum. Hjá hverju dagforeldri má mest vera með 5 börn á sama tíma. Dvalartími getur verið allt að 9 tímar á dag á virkum dögum.

Niðurgreiðsla á daggæslu

Garðabær niðurgreiðir hluta af kostnaði fyrir daggæslu hjá dagforeldri frá 10 mánaða aldri. Þannig er kostnaður við daggæslu sá sami og fyrir leikskóla. Ef foreldrar eiga ekki rétt á fullu fæðingarorlofi geta þeir sótt um greiðslu þegar barn nær 6 mánaða aldri.

Til að sækja um niðurgreiðslu þarf að skrifa undir þjónustusamning við dagforeldrið. Það sér svo um að senda samninginn til dagvistarfulltrúa Garðabæjar sem afgreiða umsóknina.

Systkina- og tekjutengdur afsláttur

Barnafjölskyldur og tekjulágir foreldrar geta átt rétt á afslætti af daggæslu.

Dagforeldri í öðru sveitarfélagi

Þú getur verið með dagforeldri fyrir barnið þitt í öðru sveitarfélagi og fengið niðurgreiðslu frá Garðabæ.

Dagforeldrið þarf:

  • að vera með gilt leyfi frá sveitarfélaginu sem það starfar í
  • skrifa undir þjónustusamning við Garðabæ
  • skrifa undir vistunarsamning við foreldri og Garðabæ

Viltu starfa sem dagforeldri?

Með því að gerast dagforeldri er hægt að skapa sér atvinnu og fá um leið tækifæri til að verja meiri tíma með eigin börnum.

Listi yfir dagforeldra

Rakel Sigurðar­dóttir

Hólma­túni 2

 847-6534

rsigurdar@simnet.is

Laust

24 ár

8.00 - 16.00

Ana Martha Helena Alvos

 Breiðás 5

 845-4001

ahelena79@hotmail.com

 Fullt - er með biðlista

 7 ár

 8:00-16:15

Kamara Emmanuella Oduh 

 Langalína 2c (íbúð 307)

 773-4776

kammyoduh20@gmail.com

Fullt - er með biðlista

Hóf störf  maí 2023

 Karen Birgisdóttir

 Línakur 3a

 777-5122

karenbirgis@gmail.com

 Fullt

 Berglind Birgisdóttir

 Línakur 3a

 691-0958

berbir@gmail.com

 Fullt