Beint í efni

Starf sem dag­for­eldri

Með því að gerast dagforeldri er hægt að skapa sér atvinnu og fá um leið tækifæri til að verja meiri tíma með eigin börnum.

Starfsleyfi

Leyfi er veitt fyrir 1 til 4 barni fyrsta árið og fyrir 5 börnum eftir það. Þar með talin eru eigin börn undir skólaaldri.

Garðabær kemur til móts við þau sem vilja gerast dagforeldrar með:

  • endurgreiðslu á námskeiði fyrir dagforeldra sem koma til starfa við daggæslu
  • aðstöðugreiðslum til að bæta aðstæður á heimilum dagforeldra fyrir öryggi barna

Dagforeldrar þurfa að staðfesta mánaðarlega hvaða börn eru í vistun hjá þeim ásamt undirskrift foreldra.

Sækja um að vera dagforeldri

Til að gerast dagforeldri þarf að sækja um hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Skilyrði:

  • Ljúka þarf námskeiði fyrir dagforeldra eða hafa menntun á sviði uppeldismála. Námskeið eru haldin regulega hjá MSS (Miðstöð símentunnar Suðurnesjum) og eru auglýst á vefsíðu MSS.
  • Dagforeldri þarf að vera að lágmarki 20 ára.
  • Dagforeldrar eldri en 65 ára fá leyfi í eitt ár í senn.
  • Skila þarf læknis- og sakarvottorði.
  • Brunarvarnir á heimili þurfa að vera fullnægjandi (reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnateppi).
  • Hafa neyðarhnapp.

Aðstöðugreiðslur

Dagforeldrar í Garðabæ geta fengið greiðslu frá bænum til að bæta aðstöðuna á heimilum þeirra. Þetta er eingreiðsla sem er greidd við leyfisveitingu.

Skilyrði til að fá aðstöðugreiðslur

  • starfsleyfi til daggæslu barna í heimahúsi
  • dagforeldrið starfi að lágmarki í 1 ár eftir að fá aðstöðugreiðsluna (annars er greiðslan endurkræf)
  • ef 2 dagforeldrar starfa saman fer greiðslan til þeirrar aðstöðu sem unnið er í
  • börn sem búa í Garðabæ hafa forgang í vistun
  • greiðslan er háð úttekt Forvarnarhúss og daggæslufulltrúa

Aðstöðugreiðslur eru ekki greiddar með börnum sem eru vistuð hjá ættingjum eða au pair.

Upphæð

  • Ákveðin upphæð er greidd með með 4 börnum.
  • Eftir eins árs starf greiðist með fimmta barninu.

Leikrými

Dagforeldrar þurfa að hafa leikrými fyrir börn innanhúss sem er að lágmarki 3,5 fm fyrir hvert barn. Fullnægjandi og hættulaus aðstaða þarf að vera til útivistar með afgirtu svæði og fullnægjandi aðstaða til matar og hvíldar.

Sjá reglugerð um daggæslu í heimahúsum.