21. ágú. 2024

Uppskeruhátíð Sumarlesturs með Gunnari Helgasyni

Hinn óviðjafnalegi Gunnar Helgason rithöfundur með meiru kemur á bókasafnið og skemmtir með upplestri úr nýjustu bók sinni. Hann mun gefa öllum duglegum lestrarofurhetjum glaðninga.

  • Uppskeruhátíð Sumarlesturs
    Hinn óviðjafnalegi Gunnar Helgason rithöfundur með meiru kemur á bókasafnið á laugardag og skemmtir með upplestri úr nýjustu bók sinni. Hann mun gefa öllum duglegum lestrarofurhetjum glaðninga.

Uppskeruhátíð sumarlestursátaksins á Bókasafni Garðabæjar verður haldin laugardaginn 24. ágúst kl. 12:00. Hinn óviðjafnalegi Gunnar Helgason rithöfundur með meiru mun mæta á svæðið, skemmta með upplestri úr nýjustu bók sinni og gefa öllum duglegum lestrarofurhetjum glaðninga.

Einnig verður gómsæt lestrarkaka fyrir alla gesti (mamma og pabbi mega fá sér eina sneið) og hægt verður að skreyta torgið með fallegum krítarmyndum.