21. júl. 2022

Vel heppnuð lokasýning hjá Skapandi sumarstörfum

Skapandi sumarstörf í Garðabæ héldu lokasýningu fyrir gesti og gangandi á Garðatorgi miðvikudaginn 20. júlí sl. í yndislegu sumarveðri. 

  • Lokahátíð Skapandi sumarstarfa í Garðabæ 2022
    Lokahátíð Skapandi sumarstarfa í Garðabæ 2022

Skapandi sumarstörf í Garðabæ héldu lokasýningu fyrir gesti og gangandi á Garðatorgi miðvikudaginn 20. júlí sl. í yndislegu sumarveðri.  Lokasýningin teygði anga sína víða um torgið fyrir framan bókasafnið og inn í fundarrými Garðabæjar í Sveinatungu.  Fjölbreytt verk voru þar til sýnis svo sem myndlist, tónlistaratriði, ritlist og útgáfa, fatahönnun og margt fleira skemmtilegt.  Gestir sem lögðu leið sína um Garðatorgið á lokasýninguna voru ánægðir með útkomuna og sannarlega hæfileikarík ungmenni þar á ferð.

Í sumar voru það 14 hæfileikarík ungmenni sem skipuðu 8 hópa sem fengu tækifæri til að vinna að ólíkum verkefnum sínum í tónlist, fatahönnun, ljóðlist, margmiðlun og myndlist.  Hóparnir tóku m.a. þátt í Jónsmessugleði Grósku fyrr í sumar og einnig hafa ungmennin staðið að fjölbreyttum viðburðum á síðustu vikum til að kynna verkefni sín. 

Á mynd hér fyrir neðan má sjá þegar Almar Guðmundsson bæjarstjóri heimsótti ungmennin í Skapandi sumarstörfum fyrir stuttu og fræddist um verkefni sumarsins. 

Skapandi-sumarstorf-2022_Almar-Gudmundsson

Á facebook síðu Garðabæjar má sjá fleiri myndir frá lokasýningunni og á facebook síðu Skapandi sumarstarfa í Garðabæ er að finna fjölmargar myndir og frásagnir af verkefnum sumarsins.

Lokahátíð Skapandi sumarstarfa í Garðabæ 2022

Lokahátíð Skapandi sumarstarfa í Garðabæ 2022