Vorhreinsun lóða í Garðabæ með sama sniði og í fyrra
Ríflega 30 gámum verður komið fyrir í bænum sem taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana.
Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður með sama sniði í ár og í fyrra, þ.e.a.s. að rúmlega 30 gámum verður komið fyrir í bænum sem taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana.
Vorhreinsun lóða fer fram dagana 9. til 22. maí í kjölfarið á hreinsunarátaki Garðabæjar sem stendur yfir frá 28. apríl til 12. maí. Gámarnir fara niður 9. maí.
Eldri borgurum og þeim sem þurfa aðstoð við að koma garðaúrgangi í gámana er bent á að hafa samband við þjónustumiðstöð Garðabæjar, sem verður þeim innan handar.
Hérna má nálgast kort sem sýnir staðsetningu gámanna.
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar
Í árlega hreinsunarátakinu, sem er frá 28. apríl til 12. maí, eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. Hópar geta sótt um að fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi og geta fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar. Áhugasamir hópar geta haft samband við verkefnastjóra garðyrkjudeildar, s. 820 8574, lindajo@gardabaer.is.