3.. fundur
3.. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
14.06.2017
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1705324
01
Hofsstaðabraut Lundaból - Umsókn um byggingarleyfi
Tekin er fyrir umsókn Garðabæjar kt. 570169-610, um að fjarlægja elstu álmu leikskólans, sem byggð var úr timbri árið 1978, alls 132,6 m2, og reisa í staðinn nýja álmu úr forsteyptum einingum, alls 178,5 m2. Einnig þarf að gera minni háttar breytingar í þeim hlutum hússins, sem tengjast ofangreindum framkvæmdum.
Með vísan til heimildar í 2. gr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra, sbr. breyting á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017, er samþykkt að umsóknin verði afgreidd sem umsókn um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir, sbr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.