7. fundur
7. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.06.2024
Kl. 13:00 - 13:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2404284
01
Útholt 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir þar sem brugðist hefur verið við umsögn deiliskipulagshöfundar hvað útfærslu á lóð varðar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við framlagða uppdrætti enda eru þeir í samræmi við deiliskipulag Hnoðraholts norður.
Málsnúmer 2405437
02
Þorraholt 13 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um ákvæði deiliskipulags hvað varðar fjölda íbúða.
Svar skipulagsstjóra: Um misritun er að ræða. Heildarfjöldi íbúða er 236 /- 20. Er því heimilt að hafa allt að 246 íbúðir innan þess svæðis sem deiliskipulagsbreyting nær til. Misritun er 216 en það passar ekki við samanlagðan fjölda í töflu eins og var í þeirri töflu fyrir breytingu.
Málsnúmer 2405443
03
Vorbraut 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 2406346
04
Spilda A í landi Grundar - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn þess efnis hvort heimilað verði að lóðin verði nefnd Álftanes.
Skipulagsstjóri telur óæskilegt að velja sérheiti á lóð sem er landlagsheiti á stórum hluta sveitarfélagsins sem stendur á fornum grunni. Auk þess getur það valdið misskilningi sem getur í versta falli varðað öryggi t.d. í neyðartilfellum.
Málsnúmer 2403089
05
Landakot II - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Gert er ráð fyrir einni íbúð í húsinu sem er að öðru leyti óráðstafað.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd hvað skipulagsþátt umsóknarinnar varðar. Heimilað er að hafa allt að 3 íbúðir að Landakoti II samkvæmt breytingu á deiliskipulagi sem staðfest var árið 2023.
Málsnúmer 2406725
06
Kinnargata 22 - Umsókn um byggingarleyf
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við útfærsluna og samþykkir veggi fyrir hönd Garðabæjar sem er landeigandi aðliggjandi svæðis.
Málsnúmer 2403196
07
Lambhagi 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn fyrir Lambhaga 17 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.