Beint í efni

4. fundur

03.03.2023
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

4. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

03.03.2023

Kl. 11:00 - 11:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2302536

01

Maríugata 13-15 - Skjólveggur - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu vindfangs ásamt umsögn deiliskipulagsráðgjafa.

Með vísan í framlagða umsögn gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað útfærslu vindfangs varðar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2303018

02

Flataskóli - Garðaskóli - Ásgarðsdeiliskipulag

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásgarðs, skóla og íþróttasvæðis, sem gerir ráð fyrir að eftirfarandi ákvæði bætist við greinargerð deiliskipulagsins:

"Heimilt er að nýta skólalóðir utan sem innan byggingarreits sem stæði fyrir færanlegar kennslustofur til bráðabirgða enda uppfylli þær kröfur byggingarreglugerðar um brunavarnir. Skólastofurnar verði þó innan byggingarreits Flataskóla sem snýr að lóðarmörkum til suðausturs.



Að öðru leyti gilda áður útgefnir skilmálar."

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010.

Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2108193

03

Hönnun - Útboð - Hraunhólar- veitutengingar

Vegna framkvæmda við Hraunhóla

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar í Hraunhólum í samræmi við framlögð gögn frá Eflu dags desember 2022.

Skipulagsstjóri samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum sem eru í samræmi við framlögð gögn sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2303084

04

Víðiholt - Framkvæmdaleyfi - gatnagerð

Lögð fram umsókn Umbru ehf um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar við Víðiholt á Álftanesi sem er í samræmi við deiliskipulag Víðiholts og framlögð gögn frá VSÓ dags 1.mars 2023.

Skipulagsstjóri samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum sem eru í samræmi við framlögð gögn sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2203099

05

Grímsgata 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi ásamt fyrirspurn um útfærsu á svalagangi.

Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa.