Beint í efni

15. fundur

28.12.2023
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

15. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

28.12.2023

Kl. 13.00 - 13.15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2311622

02

Móaflöt 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram nýir aðaluppdrættir fyrir Móaflöt 6 þar sem óskað er eftir því að þakformi íbúðarhússins verði breytt en fyrri byggingarlýsing verði óbreytt. Þak bílageymslu er óbreytt.

Umsóknin gerir ráð fyrir því að tvíhalla þaki, sem hallar inn að miðju sé breytt í einhalla þak.

Mænishæð íbúðarhúss verður 4,1 mog þakhalli er um 3°.

Útfærslan er í samræmi við skilmála deiliskipulags Flata. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem byggir á framlögðum aðaluppdráttum.

Málsnúmer 2310445

03

Haukanes 22 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir einbýlishúss að Haukanesi 22. Hæð girðingar að lóðarmörkum að götu er 75 cm. Skipulagsstjóri samþykkir hæð veggja sem liggja að götu fyrir hönd Garðabæjar.

Allir veggir á lóð eru undir 180 cm og samráð hefur verið haft við eigendur aðliggjandi lóða um frágang á lóðarmörkum.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærsluna enda er hún í samræmi við gildandi deiliskipulag Arnarness.

Málsnúmer 2211541

04

Dýjagata 7 - breyting á deiliskipulagi - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir einnar hæðar byggingarreit neðanjarðar á 1. hæð að lóðamörkum græns geira í eigu Garðabæjar. Einnig er heimilt að koma fyrir steyptum vegg á lóðamörkum að grænum geira. Hámarkshæð steypts veggjar er 90 cm yfir aðliggjandi landhæð. Byggingarmagn, kennisnið og deiliskipulagsskilmálar eru að öðru leyti óbreytt.

Grenndarkynning hefur farið fram og lauk fresti til að skila inn athugasemdum þann 28.nóvember sl.

Engar athugasemdir bárust.

Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2311618

05

Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 - Miðsvæði M7 - Hamarshöfn H6

Lögð fram verkefnislýsing Hafnarfjarðar á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna fyrirhugaðrar breytingar á landnotkunarreitum M7, S42 og H6.

Fyrir hönd Garðabæjar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við framlagða verkefnislýsingu.