Beint í efni

8. fundur

10.07.2024
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

8. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

10.07.2024

Kl. 09:30 - 09:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2407106

01

Framkvæmdarheimild - Lagnaframkvæmdir við Bragalund / Faxatún 9




Lögð fram umsókn Vatnsveitu Garðabæjar fyrir framkvæmum vegna endurbóta á fráveitu húsa við Faxatún.

Tillaga sem fylgir umsókninni gerir ráð fyrir því að fráveituæð verði lögð um opið svæði (Bragalund) sem er að húsabaki þeirra húsa í Faxatúni sem að því liggja (oddatölur).

Gengið verður þannig frá lögninni að hægt verður í framtíðinni að tengja fráveitu annarra húsa sem liggja að Bragalundi við fráveitulögnina.

Sent verður dreifibréf til íbúa við Faxatún þar sem að framkvæmdin verður kynnt.

Til að byrja með verður fráveitulögn tengd við Faxatún 9 og félagsheimili Kiwanis sem stendur í Bragalundi. (leikvallarhús)

Í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010 veitir skipulagsstjóri leyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við framlögð gögn.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II (2.gr.h) við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.