12. fundur
12. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
20.07.2026
Kl. 16:30 - 16:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Móaflöt 12 - Umsókn um byggingaráform - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi á breytingum á einbýlishúsinu að Móaflöt 12. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
02
Vetrarbraut 19, dsk breyting stærð lóðar
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að lóðin Vetrarbraut 19 minnki úr 5.641 m2 í 3.955 sem nemur svæði innan lóðar þar sem gert er ráð fyrir settjörn fyrir ofanvatn. Um leið hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 2,5 í 3,6 þar sem heimilað byggingarmagn lóðarinnar er það sama og fyrir breytingu.
Einnig gerir breytingartillagan ráð fyrir því að rampur fyrir bílakjallara verði bæði á lóðinni annarsvegar Vetrarbraut 17 og Vetrarbraut 19 hinsvegar en ekki sameiginlegur rampur eins og skipulagið gerir ráð fyrir.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.