38 (1658). fundur
38 (1658). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
07.10.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til umhverfis- og auðlindaráðuneytis varðandi nýja reglugerð um starfsemi slökkviliða, dags. 29.09.14.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið í bréfi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um að við gerð reglugerðarinnar beri að taka tillit til sérstöðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og að óásættanlegt er að reglugerðin verði látin taka gildi án neinnar aðlögunar með þeim áhrifum að kostnaður sveitarfélaganna vegna starfsemi slökkviliðsins aukist um 245,0 til 490,0 mkr.
02
Bréf stjórnar húsfélags Kirkjulundar 6-8 og Garðatorgs 17 varðandi samkomusal húsfélagsins, dags. 25.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
03
Bréf Neytendasamtakanna varðandi styrk, dags. 30.09.14.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
04
Bréf starfsfólks leikskólans Ása varðandi styrk vegna námsferðar starfsmanna, dags. 02.10.14.
Bæjarráð telur ekki eðlilegt að bærinn komi að styrkveitingum vegna náms- og kynnisferðum annarra starfsmanna en starfsmanna bæjarins og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, sat hjá við afgreiðslu málsins.
05
Bréf Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra varðandi styrk vegna túlkaþjónustu, dags. 24.09.14.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs og felur sviðsstjórum afgreiðslu þess með hliðsjón af atburðum eða tilvikum hverju sinni.
06
Bréf Laufeyjar Jóhannsdóttur varðandi umgengni og umhirðu við ströndina á Sjálandi, dags. í sept. ´14.
Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
07
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2015, dags. 30.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
08
Bréf stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2015, dags. 01.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
09
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi European Local Democracy Week 2014, dags. 30.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar mannréttinda- og forvarnanefndar.
10
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB varðandi stéttarfélagsaðild starfsmanna í málefnum fatlaðra, dags. 01.10.14.
Lagt fram.