1. fundur
1. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.01.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - Aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - Aðalmaður
- Ragný Þóra Guðjohnsen - Aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi afgreiðslu og skil á fjárhagsáætlunum sveitarfélaga 2013, dags. 28.12.12.
Lagt fram.
02
Bréf SSH varðandi verklýsingu endurskoðun á gildandi vatnsvernd fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 21.12.12.
<SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: EN-US; mso-fareast-language: IS; mso-ansi-language: Roman?; New ?Times mso-fareast-font-family: 11pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; Times>Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.</SPAN>
03
Bréf Marenar Rúnar Gunnarsdóttur varðandi leikskólagjöld, dags. 17.12.12.
Bæjarráð áréttar að við stofnun sameinaðs sveitarfélags var tekin ákvörðun um samræmingu á öllum gjaldskrám í stofnunum bæjarins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
05
Bréf stjórnar skíðasvæða á höfuðborgarsvæðinu varðandi 9 mánaða uppgjör fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, dags. 17.12.12.
Lagt fram.
06
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi fráveitumál að Laufási 1, dags. 13.12.12
Bæjarverkfræðingur upplýsti að hafnar eru framkvæmdir á vegum bæjarins til að tengja viðkomandi hús við fráveitukerfi bæjarins.
07
Bréf SSH varðandi undirbúning að sameiginlegri stjórn Bláfjalla- og Reykjanesfólkvanga, dags. 06.12.12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar SSH um að kjósa fulltrúa bæjarins í stjórn Reykjanesfólkvangs í stjórn Bláfallafólkvangs. Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfisnefnd.
08
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi eftirlit og starfsleyfisútgáfu, dags. 18.12.12.
<SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA">Lagt fram.</SPAN>
09
Afgreiðsla byggingarfulltrúa tímabilið 14.12.2012-04.01.2013
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 14.12.2012 - 04.01.2013 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna eftirfarandi eigna: Keldugata 5 og Hörgatún 2
10
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðis samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega, dags. 04.01.13
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli - og örorkulífeyrisþega. Einstaklingar:
Einstaklingar með tekjur árið 2011 allt að kr. 4.200.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.500.000. Hjón:
Hjón með tekjur árið 2011 allt að kr. 5.400.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.600.000.
11
Bréf Sveitarfélagsins Álftaness varðandi hverfastjórn og áheyrnarfulltrúa, dags. 22.12.12
Samkvæmt ákvörðun undirbúningsstjórnar að stofnun nýs sveitarfélags skal fyrrverandi bæjarstjórn Sveitarfélagsins Álftaness starfa sem hverfastjórn samkvæmt 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Bæjarráð samþykkir að fulltrúum í hverfastjórn verði greidd föst mánaðarleg þóknun með sama hætti og gert í stærri nefndum bæjarins. (skipulagsnefnd, skólanefnd og fjölskylduráði). Bæjarráð samþykkir að áheyrnarfulltrúar fái greitt fyrir fundi með sama hætti og aðrir nefndarmenn samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um laun fyrir störf í nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar.
12
Bréf Sveitarfélagsins Álftaness varðandi afnot af léninu alftanes.is, dags. 22.12.12.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
13
Bréf Fjármálaeftirlitsins varðandi nýjar reglur um meðferð innherjaupplýsinga, dags. 17.12.12.
Lagt fram.
14
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi breytingu á reglugerð um húsaleigubætur.
Lagt fram.
15
Tillaga Steinþórs Einarssonar bæjarfulltrúa um sérstakar húsaleigubætur, dags. 10.12.12.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar fjölskylduráðs.
16
Hjúkrunarheimili við Strikið - Kaup á búnaði.
<P>Lagður fram listi yfir búnaðarkaup fyrir þjónustumiðstöð að fjárhæð 26,2 mkr. </P><P>Bæjarráð samþykkir að viðhaft verði forval til að velja viðsemjendur vegna kaupa á tækjum og búnaði fyrir þjónustumiðstöð. </P>
17
Gjaldskrá fyrir tómstundaheimili.
Bæjarráð samþykkir tillögu um eftirfarandi viðbótarlið í gjaldskránni: Gjald fyrir dægradvöl í 71 - 80 klst skal vera kr. 24.400.
18
Styrkir til starfsmanna Garðabæjar til að stunda heilsurækt
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um íþróttastyrk til starfsmanna. ”Starfsmenn Garðabæjar sem hafa starfað samfellt hjá bænum í fjóra mánuði og eru í 30% starfshlutfalli eða meira skulu eiga rétt á að kaupa árskort í sundlaugum Garðabæjar fyrir kr. 11.000.“
19
Lyngás 9: Leigusamningur vegna afnota að húsnæði fyrir tónlistarstarfsemi
Bæjarráð samþykkir að leigja hljómsveitinni Of Monsters and Men aðstöðu í húsnæði bæjarins við Lyngás 9. Bæjarstjóra falið að ganga frá leigusamningi.
20
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi lagabreytingar sem snerta sveitarfélögin, dags. 20.12.12.
Lagðar fram til kynningar.
21
Fjárstreymisyfirlit janúar - nóvember 2012
Á fund bæjarráðs mætti fjármálastjóri og gerði grein fyrir fjárstreymisyfirliti fyrir tímabilið janúar - nóvember 2012.