34. fundur
34. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
09.09.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Sorpu bs. varðandi árshlutareikning, janúar - júní 2014, dags. 01.09.14.
Lagt fram.
02
Svar við fyrirspurn Fólksins í bænum um skólamál, dags. 15.07.14.
Lagt fram svar við fyrirspurn Fólksins um bænum um skólamál er varðar niðurstöður PISA- könnunar hjá grunnskólum í Garðabæ þar sem við á.
03
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í kærumáli vegna afgreiðslu byggingarleyfis fyrir Austurtún 18 og 20.
Lagður fram.
04
Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi nýja reglugerð um starfsemi slökkviliða, dags. 01.09.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka málið til umfjöllunar innan stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.
05
Bréf sóknarprests Garðasóknar varðandi sálgæsluþjónustu, dags. 05.08.14
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
06
Bréf íþróttafulltrúa varðandi styrkbeiðni Laufeyju Sverrisdóttur, dags. 27.08.14.
Bæjarstjóri upplýsti um afgreiðslu á styrk til styrkbeiðanda.
07
Umsókn um byggingarleyfi - Stórakur 4
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss við Stórakur 4.
08
Umsókn um byggingarleyfi - Draumahæð 2
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Draumahæð 2.
09
Bréf Sjálfsbjargar varðandi styrk vegna ársins 2015, dags. 01.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
10
Bréf mannauðsstjóra varðandi umsókn Maricris C De Luna um styrk til að stunda nám á háskólastigi, dags. 03.09.14.
Bæjarráð samþykkir að veita umsækjanda styrk sem nemur 10% af vikulegri vinnuskyldu til að stunda nám á háskólastigi. $line$$line$Fyrir liggur að mannauðsdeild og skóladeild mæla með samþykkt umsóknarinnar.
11
Bréf mannauðsstjóra varðandi umsókn Unnar Þórláksdóttur um styrk vegna framhaldsnáms á háskólastigi, dags. 03.09.14.
Bæjarráð samþykkir að veita umsækjanda styrk sem nemur 10% af vikulegri vinnuskyldu til að stunda nám á háskólastigi. $line$$line$Fyrir liggur að mannauðsdeild og skóladeild mæla með samþykkt umsóknarinnar.
12
Bréf Samtaka ungra bænda varðandi varðveislu landbúnaðarlands, dags. 04.09.14.
Lögð fram ályktun frá aðalfundi ungra bænda árið 2014 er varðar varðveislu landbúnaðarlands.
13
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi framlög úr Jöfnunarsjóði fyrir árið 2015, dags. 27.08.14.
Lagt fram.
14
Fyrirspurn Steinþórs Einarssonar bæjarfulltrúa um félagslegt húsnæði og leikskólamál, dags. 04.09.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara framkomnum fyrirspurnum.