Beint í efni

6. fundur

12.02.2013
Bæjarráð Garðabæjar

6. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

12.02.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • Ragný Þóra Guðjohnsen - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1302035

01

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til sveitarstjórnarlaga, dags. 04.02.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1302037

02

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til sveitarstjórnarlaga (fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa og efling íbúalýðræðis), dags. 04.02.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1302087

03

Bréf Álftaneskórsins varðandi stuðning við móttöku á erlendum kór, dags. 06.02.13.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 1302046

04

Bréf Strætó bs. varðandi leiðakerfisbreytingar árið 2014, dags. 04.02.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar hverfisstjórnar og ungmennaráð. Jafnframt er því vísað til skoðunar fulltrúa bæjarins í stjórn Strætó bs.

Málsnúmer 1302052

05

Bréf Gunnars Torfasonar og Atla S. Grétarssonar varðandi uppsögn á samningi um akstur fatlaðra, dags. 30.01.13.

Lagt fram. Félagsmálastjóri gerði grein fyrir að samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að undirbúningi útboðs.

Málsnúmer 1302062

06

Bréf Jóhannesar V. Bjarnasonar varðandi rekstur gistiheimilis að Hliðsvegi 1, dags. 05.02.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar hverfissstjórna og til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 1211453

07

Bréf Atlantsolíu varðandi afturköllun á erindi um bensínstöð á mótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar, dags. 07.02.13.

Lagt fram ofangreint bréf þar sem erindi um sjálfsafgreiðslustöð fyrir bensín á mótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar er afturkallað.

Málsnúmer 1211264

08

Bréf skipulagsstofnunar varðandi nýja skipulagsreglugerð, dags. 01.02.13.

Lagt fram ogt vísað til kynningar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1301109

09

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 01.02.-08.02.2013.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 01.02 ? 08.02.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða stöðuleyfi fyrir tvo gasgeymslugáma við Vesturhraun 5.

Málsnúmer 1302015

10

Yfirlit yfir byggingarframkvæmdir í Garðabæ árin 1979 - 2012.

Lagt fram.

Málsnúmer 1107007

11

Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi uppbyggingu á svæði félagsins, dags. 05.02.13.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með forsvarmönnum GKG um uppbyggingu svæðisins. Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir nánari kostnaðargreiningu og hugmyndum klúbbsins forgangsröðun við uppbyggingu á svæðinu.

Málsnúmer 1302140

12

Bréf Ungmennafélags Íslands varðandi Landsmót UMFÍ 50+ árið 2015, dags. 07.02.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1302145

13

Bréf Ungmennafélags Íslands varðandi Landsmót UMFÍ 2017 og 2021, dags. 07.02.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1302144

14

Bréf Ungmennafélags Íslands varðandi Unglingalandsmót UMFÍ árið 2016, dags. 07.02.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1302127

15

Bréf Skáksambands Íslands varðandi styrk vegna skákmóts, dags. 08.02.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1109044

16

Vinabæjamót í Garðabæ 2012

Lagt fram bréf bæjarstjóra varðandi skipulag og fyrirkomulag á vinabæjarmótum. Bæjarráð vísar til hverfisstjórnar að taka til umfjöllunar fyrirkomulag á samstarfi við þau sveitarfélög sem voru vinabæir Sveitarfélagsins Álftaness.

Málsnúmer 1302036

17

Norrænt samstarfsverkefni: Nordisk vänskap genom IPad.

Lagt fram.

Málsnúmer 2010060058

18

Hjúkrunarheimili á Sjálandi: Staða mála

Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála varðandi framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili.

Málsnúmer 1302141

19

Hjúkrunarheimili á Sjálandi: Undirbúningur fyrir starfsemi nýs hjúkrunarheimilis.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir skipun undirbúningshóps vegna starfsemi nýs hjúkrunarheimilis.